Spurt og svarað

 

Stund

Starfsmaður kemur ekki fram í VinnuStund

Starfsmaður getur ekki skráð fjarvist (engar fjarvistategundir í fellilista)

Það reiknast ekkert úr tímafærslum

Starfsmenn geta ekki skráð vaktaóskir úr sjálfsþjónustu

Tímafærslur ekki komnar í launakerfi

Hvernig breyti ég stimplun?

 

 

Vinna

Næ ekki að manna vaktir

Vaktir starfmanns eru gráar í vinnuborði vaktaáætlunar

Óskir starfsmanna birtast ekki í vinnuborði vaktaáætlunar

Engar vaktir koma á starfsmann ef reynt er að rúlla á hann vöktum

Af hverju birtist autt mönnunargraf í vinnuborði vaktaáætlunar

Af hverju birtist hæfniþáttur og færnistig starfsmanns með rauðum texta í vinnuborði vaktaáætlunar

Breytingar á mönnunarþörf birtast ekki í grafi vaktaáætlunar

Næ ekki að afrita neinar mönnunarforsendur yfir á tímabil

Allar vaktir sem settar eru á ákveðinn starfsmann birtast með villu

Hvernig breyti ég stöðu vaktaáætlunar

Vinnutími dagvinnumanna kemur ekki fram á vaktaáætlun, þó hann sé í vaktahópnum.

 

Starfsmaður kemur ekki fram í VinnuStund

Er búið að skrá starfsmann í starfsmannakerfinu?

Er búið að skrá starf fyrir starfsmann í starfsmannakerfinu?

Er búið að tengja starfsmann við notanda í starfsmannakerfinu?

Er yfirmaður búinn að tengja starfsmann í VinnuStund?

Er skipulagseining tengd við VinnuStund?

Starfsmaður getur ekki skráð fjarvist (engar fjarvistategundir í fellilista)

Er búið að skrá rétt skráningarleyfi á starfsmann?

Er búið að skrá rétt skráningarleyfi á fjarvistategundirnar?

Er búið að skrá fjarvistategundir fyrir stofnunina?

Það reiknast ekkert út úr tímafærslum

Er starfsmaður á kjarasamningi?

Er starfsmaður með vinnufyrirkomulag?

Er búið að skrá tímafærslur fyrir starfsmann (ef vinnutími stýrir ekki útreikningi)?

Er kjarasamningur með réttar reiknireglur?

Er rétt launategund á reiknireglu?

 

Hvernig breyti ég stimplun?

Farðu í tímafærslumyndina og veldu það tímabil sem þú ætlar að breyta.

Smelltu á + þann dag sem þú ætlar að breyta stimpluninni.

Settu inn rétta inn- eða útstimplun og vistaðu.

Athugaðu að í Stund þá er upphafleg stimplun alltaf geymd í kerfinu. Þegar þú breytir stimplun þá verður til tímafærsla.

Starfsmenn geta ekki skráð vaktaóskir í sjálfsþjónustu

Er búið að stofna vaktaáætlun?

Er vaktaáætlun í réttri stöðu(Óskir)?

Er dagsetning frests á óskum á vaktaáætlun liðinn?

Er opið fyrir skráningu vaktaóska á vaktaáætluninni?

Er starfsmaður með skráða hæfni og færnisstig?

Er starfsmaður í vaktahóp sem tengdur er á vaktaáætlunina?

Má starfsmaður óska sér vakta ( í nánar mynd starfsmanns )

Tímafærslur ekki komnar í launakerfi

Er búið að senda tímafærslur til launakerfis?

Er búið að samþykkja tímafærslur starfsmanna?

Er búið að stofna uppgjörstímabil?

Næ ekki að manna vaktir

Stemma vaktasett í sjálfvirkni og mönnunarþörf skipulagseiningarinnar?

Eru næg stöðugildi miðað við mönnunarþörf?

Er skráð starfshlutfall á starfsmenn (vinnutími)?

Eru of miklar, þröngar vaktastýringar á starfsmönnum (t.d. margir með lokun á helgarvaktir)?

Vantar vaktastýringar t.d fjöldi vakta í lotu, lágmarkshvíld?

 

Vaktir starfmanns eru gráar í vinnuborði vaktaáætlunar

Er sía í vaktaborði stillt þannig að vaktir starfsmannsins eigi að sjást ?

Er hæfniþáttur starfsmannsins tilgreindur í mönnunarþörf?

Er hæfniþáttur vaktar valinn í síuglugga?

Er nokkuð um að ræða óvirka tegund vaktar,þ.e. ekki valin í síu?

Er nokkuð um að ræða vakt af annarri vaktaáætlun?

 

Óskir starfsmanna birtast ekki í vinnuborði vaktaáætlunar

Er hakað við óskir í síu í vinnuborði?

 

Engar vaktir koma á starfsmann þegar reynt er að rúlla á hann vöktum

Er starfsmaður skráður með hæfniþátt ( er gert í mannauðskerfinu)

Er vinnufyrirkomulag örugglega skráð á starfsmanninn í viðveruhlutanum? Dagsetning vinnufyrirkomulags þarf einnig að vera innan tímabils vaktaáætlunar.

Vinnufyrirkomulag  er skráð í viðveruhlutanum.

Ræstu upp viðveruhlutann Stund.

Veldu Starfsmenn->Starfsmenn og smelltu á Leita hnappinn. Smelltu á nafn starfsmannsin í listanum sem birtist. Smelltu á flipann Vinnufyrirkomulag.

Ef ekkert vinnutímaskipulag er skráð á starfsmanninn smelltu þá á nýskrá táknið (plúsinn) og veldu það vinnutímaskipulag sem starfsmaðurinn á að vera með. Smelltu að lokum á Vista hnappinn.

Er rúllan rétt? Kíktu á vaktarúlluna í Vinnu.

Á starfsmaðurinn vinnuskyldu þá daga sem setja á vaktir á hann? Kerfið setur ekki vaktir á starfsmann þá daga sem hann á ekki vinnuskyldu.

 

Af hverju birtist autt mönnunargraf í vinnuborði vaktaáætlunar

Ert þú örugglega búin(n) að afrita mönnunarforsendurnar yfir á það tímabil sem vaktaáætlunin nær yfir

 

Af hverju birtist hæfniþáttur og færnistig starfsmanns með rauðum texta í vinnuborði vaktaáætlunar

Ef hæfniþáttur og færnistig starfsmanns er birt með rauðum texta í vinnuborði vaktaáætlunar þá er ekki gert ráð fyrir þessum tiltekna hæfniþætti og færnistigi í mönnunarforsendum. Skoðaðu mönnunarforsendur í vaktakerfinu.

 

Breytingar á mönnunarþörf birtast ekki í grafi vaktaáætlunar

Ert þú örugglega búin(n) að afrita mönnunarforsendurnar eftir breytingar yfir á það tímabil sem vaktaáætlunin nær yfir. Ef vaktaáætlunin var opin þá þarf að loka henni og opna hana aftur.

 

Næ ekki að afrita neinar mönnunarforsendur yfir á tímabil

Eru mönnunarforsendurnar sem þú ert búin að búa til örugglega í gildi?

Þú sérð það með því að opna mönnunarforsenduna og athuga hvort hakað sé við Í gildi. Það er aðeins hægt að afrita mönnunarforsendur sem eru í gildi.

 

Allar vaktir sem settar eru á ákveðinn starfsmann birtast með villu

Athugaðu hvort vaktastýringar starfsmannsins í viðverukerfinu séu eitthvað óeðlilegar ( upplýsingar um vaktastýringar starfsmanns)

 

Hvernig breyti ég stöðu vaktaáætlunar

Farðu í Vaktir -> Vaktaáætlun. Veldu vaktaáætlun úr lista og smelltu á breyta hnappinn breyta.gif Breyttu stöðu vaktaáætlunar í svæðinu Vaktastaða. Athugaðu að setja inn þær dagsetningar sem þarf fyrir hverja stöðu. Mundu eftir að vista til að nýja staðan taki gildi. Sjá nánar Staða áætlunar.

 

Vinnutími dagvinnumanna kemur ekki fram á vaktaáætlun, þó hann sé í vaktahópnum.

Athugaðu hvort að ekki eigi eftir að skrá vinnufyrirkomulag á starfsmanninn. Það er gert í viðveruhlutanum Stund.

Ræstu upp Stund. Veldu Starfsmenn->Starfsmenn og smelltu á Leita hnappinn.

Smelltu á nafn starfsmannsin í listanum sem birtist.

Smelltu á flipann Vinnufyrirkomulag. Ef ekkert vinnutímaskipulag er skráð á starfsmanninn  smelltu þá á nýskrá táknið (plúsinn) og veldu það vinnutímaskipulag sem starfsmaðurinn á að vera með. Smelltu að lokum á Vista hnappinn.

 

Athugaðu að ef að vaktaáætlunin hefur verið hefur opin á meðan þú varst að setja inn þessa stýringu þá þarftu að loka henni og opna hana síðan aftur til þess að breytingarnar séu lesnar inn.

 

Er hakað við Dagvinna í síuglugga á vinnuborði? Dagvinnutími sést ekki ef ekki er hakað við Dagvinna.