Gera vaktaáætlun

Tilgangur

Vaktaáætlun er vinnuskipulag vaktavinnumanna. Vaktaáætlun er gerð fyrir ákveðið tímabil, hefur ákveðna stöðu (óskir, í vinnslu, uppkast, samþykkt) og fyrir ákveðinn vaktahóp (ákveðna starfsmenn).

 

Hægt er að setja mismunandi tegundir vakta á starfsmenn. Fer það eftir því hvers konar vinnutímaskipulag er á starfsmanninum.

Vinnutímaskipulag starfsmanna er skráð í viðveruhlutanum Stund.

 

Hægt er að skrá allar vaktir á starfsmenn sem hafa Vaktavinnumenn, Dagvinnumenn á vöktum og Tímavinnumenn á vöktum sem vinnutímaskipulag.

 

Fyrir önnur vinnufyrirkomulög er hægt að skrá allar tegundir vakta nema almennar vaktir.

 

Vaktaáætlun er gerð á mismunandi hátt eftir starfsemi skipulagseininga. Kerfið býður upp á eftirfarandi aðferðir við að gera vaktaáætlun fyrir vaktahópa:

                                               

Vaktarúllur                             Kerfið setur vaktir samkvæmt þeim vaktarúllum sem skilgreindar eru á starfsmann.

 

Vaktaóskir                               Kerfið setur vaktir eftir vaktaóskum starfsmanna út frá mönnunarþörf á hverjum tíma og

                                                        punktastöðu starfsmanna.

  

Raða vöktum sjálfvirkt     Kerfið raðar vöktum á starfsmenn út frá mönnunarþörf, reglum um vinnutilhögun í

                                                         samningum, vaktastýringum skipulagseininga/starfsmanna og forsendum í sjálfvirkni.

 

Raða vöktum handvirkt     Vöktum er raðað handvirkt á starfsmenn. Kerfið birtir villuboð og aðvaranir ef

                                                           samningar við starfsmenn eru brotnir. Þessa aðferð má nota til að skrá einstakar vaktir

                                       eða færa til vaktir í lok vaktaáætlunargerðar til að fínpússa áætlun fyrir samþykkt.

                                                           Eins er þessi aðferð notuð þegar einstaka vaktir eru færðar til á samþykktu tímabili

Gátlisti yfir vinnuferli við vaktaáætlunargerð

Hver framkvæmir

Vaktasmiðir

Áður gert

Skilgreina vaktastýringar fyrir skipulagseiningu

Skilgreina vaktastýringar fyrir starfsmenn

Skilgreina mönnunarþörf

Skilgreina vaktahóp

Stofna vaktaáætlun

Hvar gert

Í Vinnu (vaktahluta kerfisins). Velja Vaktir->Vaktaáætlun.

 

Gátlisti yfir vinnuferli við gerð vaktaáætluna

 

 

3. Ný áætlun. Sett inn nýtt vaktatímabil. Opnað fyrir óskir ef nota á óskaleiðina eða sett beint í stöðuna í       vinnslu.  Ef opnað er fyrir óskir þarf að setja inn dagsetningu frests á óskum, þ.e. hvenær óskafresturinn rennur  út.  Vinnuleið: Vinna-Vaktir-vaktaáætlun.

Nánar (vinnur vaktir – já,Má óska vakta –Já(ef nota á óskir)) ,

Rúllur (ef við á),

Vaktastýringar (helgar,næturvinna ofl. – ef við á).

Kaffitímar (autt,kaffitímar greiddir sem viðbót,kaffitímar minnka vinnuskyldu,kaffitímar minnka vinnuskil)

 

Þegar stýringar hafa verið skráðar á starfsmanninn þarf að setja hann í réttan vaktahóp, þá birtist hann í vinnuborði og hægt að setja á hann vaktir.

 

5. Skrá leyfi fyrir alla sem fara í leyfi næsta tímabil? Vinnuleið í Stund : Stund- yfirfara fjarvistir. Hægt er að skrá/eyða leyfi bæði í Vinnu (vinnuborði vaktaáætlunar) og í Stund.                                                                                                     Hver stjórnandi hefur val um tvær leiðir til að skrá orlof:

 

Ef leyfið á að telja út frá vöktum, þurfa vaktir að vera á tímabilinu (vaktir upp í fulla vinnuskyldu). Ef ein einasta vakt er á því tímabili sem orlof er skráð  – gerir kerfið ráð fyrir þessari leið (þ.e. telja orlof alfarið út frá skilgreindum vöktum) og setur ekki niður meðaltalsvaktir. Of fáar vaktir valda skuld í vinnuskilum.

 

Ef engin vakt er á orlofstímabilinu, “skáldar” kerfið sjálfvirkt vaktir. Það setur niður vaktir alla virka daga – lengd hverra vaktar er meðaltals vinnuskil miðað við 5 daga. Hjá hlutavinnufólki koma því ,,vaktir” styttri en 8 tímar. Ef valið er að nota meðaltal þarf að útiloka að vaktir séu á tímabilinu.  

 

Ef eyða  þarf orlofsdögum/tegundum er vinnuleiðin: Stund – yfirfara tímar- valin.

Sett eru inn leitarskilyrði og smellt á Leita hnappinn. Smellt er á nafn þess starfsmanns sem leiðrétta á orlof hjá.

 Sú orlofsfærsla sem á að eyða er sett í stöðuna ósamþykkt (Ó) og vistuð. Síðan er smellt á orlofsfærsluna til að eyða henni.

 

Athugið að hægt er að eyða mörgum færslum í einu.

Einnig er hægt að eyða orlofsfærslum í Vinnu (vinnuborð vakaáætlunar).

 

 6.    Gera vaktaáætlun. Vinnuleið: Vinna -> Vaktir -> Vaktaáætlun.

Tvísmella á heiti þeirrar vaktaáætlunar sem á að vinna með til að  opna hana.

Rúlla út vöktum ef einhverjir starfsmenn eru á rúllum

Keyra inn óskir – ef við á.  

Keyra sjálfvirkni – ef við á

Setja inn vaktir handvirkt/sjálfvirkt.  

Er mönnunarþörf uppfyllt? Graf skoðað eftir hæfni/færnistigum.

Eru starfsmenn að skila réttum tímafjölda? Skoðað viku fyrir viku auk samtalna (summur).

 

 7.    Vaktaáætlun birt á vef. Vinnuleið: Vaktir - vaktaáætlun, breyta stöðu (gult þríhyrnt merki).

Dagsetning. uppkast birtist á vef sett inn.

                    Dagsetning útgefinnar áætlunar sett inn.

 

 8. Prenta út áætlun.  Vinnuleið: Vinna - Skýrslur-Áætlun og úr vinnuborði vaktaáætlunar

       Hægt er að velja um að prenta eftir mismunandi litum(valið í síuglugga):

      Hægt er breyta ákveðnum atriðum í útprentun.

     

Dagplön Vinnuleið: Vinna-Skýrslur-Dagplan

 

Nokkrir valkostir um útlit á dagplani

 

   9. Vinnsla hafin við nýja áætlun. Vaktaáætlun stofnuð, opnað fyrir óskir eða sett í stöðuna “Í vinnslu”.

 

Sjá einnig:

Ferli við vaktagerð