Rúlla vöktum á starfsmenn – valin rúlla

Tilgangur

Í sjálfvirkri vaktaáætlanagerð er hægt að nota vaktarúllur til að rúlla vöktum sjálfvirkt. Ef valin er ákveðin rúlla til að rúlla út er hægt að velja starfsmenn til að rúlla á eða nota alla starfsmenn sem tengdir eru rúllunni. Einnig er hægt að rúlla út vöktum á hluta vaktatímabils.

Hver rúllar vöktum á starfsmenn

Vaktasmiðir.

Hvar gert

Í Vinnu. Velja Vaktir -> Vaktaáætlun -> Sjálfvirkni -> Rúllur

Áður gert

Skilgreina vaktastýringar

 

Skilgreina eftirfarandi stýringar á starfsmanninn í viðveruhlutanum Stund:

Vinnutímaskipulag( Starfsmenn->Starfsmenn->flipinn vinnufyrirkomulag), á starfsmaður að fá greidda bætingu eða þarf að setja á hann helgidagafrí.

Setja "Já" í "Vinnur vaktir" (Starfsmenn->Starfsmenn-> Nánar myndin)

Setja þarf vaktastýringar á starfsmann ef við á (Starfsmenn->Starfsmenn->flipinn Vaktastýringar)

 

Hæfniflokka starfsmann (gert í starfsmanna-launakerfi eða í Stund, fer eftir því hvaða launakerfi er notað).

Setja starfsmann í vaktahóp.

 

Setja starfsmann í vaktahóp.

Stofna vaktarúllu

Stofna vaktaáætlun

 

 

Sjá einnig Rúlla vöktum á starfsmenn - allar rúllur

Gátlisti

Velja vaktaáætlun

Opna vinnuborð

 

Smella á "Rúlla út vöktum" í flipanum "Aðgerðir" (Mynd 1)

 

Velja rúllu úr vallista (Mynd2)

 

Haka við “Velja rúllu” (Mynd2)

 

Velja starfsmenn (Mynd 3)

 

Setja inn frá hvaða degi á að rúlla úr vöktum (Rúlla frá degi). (Mynd 3)

Númer á fyrsta degi segir til um hvar starfsmaður er staddur í rúllunni miðað við byrjunardagsetningu.(Mynd 3)

Rúlla vöktum á valda starfsmenn (Mynd 3)

 

 

Mynd  1. Vinnuborð vaktaáætlunar. Smella á "Rúlla út vöktum"

 

 

Mynd  2.Velja rúllu úr vallista

 

 

Mynd  3. Velja starfsmenn sem rúlla á vöktum á samkvæmt valinni rúllu

Athugið að þegar rúlla á vöktum á starfsmenn sem ekki eru tengdir rúllunni þarf að skilgreina frá hvaða degi á að rúlla og númer á fyrsta degi í rúllu.

Númer á fyrsta degi segir til um hvar starfsmaður er staddur í rúllunni miðað við byrjunardagsetningu.

 

 

Mynd 4. Rúlla á starfsmenn sem tengdir eru valinni rúllu.

 

Starfsmenn geta verið tengdir rúllum, þá birtist listi yfir þá starfsmenn sem þegar er búið að tengja við valda rúllu (Mynd 3), eða hægt er að velja starfsmenn (Mynd 4) úr þeim hópi starfsmanna sem tengdir eru skipulagseiningunni.

 

Starfsmenn eru tengdir við rúllur í viðveruhlutanum Stund eða í Vinnu.

 

Starfsmenn eru valdir með því að velja þá úr lista vinstra megin og flytja þá yfir í listann “Valdir starfsmenn” með því að smella á hnappinn með <einni pílu>.

Einnig er hægt að færa alla starfsmenn yfir í listann “Valdir starfsmenn” með því að smella á hnappinn með <tveimur pílum>.

Ef rúlla á vöktum á valda starfsmenn þá þarf að setja inn dagsetningu á því hvenær rúllan eigi að byrja og hvar í rúllunni starfsmaðurinn er staddur miðað við byrjunardagsetningu (Númer á fyrsta degi. Sjá Mynd 4.).

 

Þegar búið er að velja starfsmenn verður “Rúlla” hnappur virkur.

 

Að lokum er smellt á “Rúlla” hnappinn sem notar valda vaktarúllu til að rúlla vöktum á starfsmenn.

 

Efst á síðu