Skoða tímafærslur

Hver framkvæmir

Næsti yfirmaður, launadeild.

 

Tilgangur

Til að hægt sé að fylgjast með tímafærslum starfsmanns yfir ákveðið tímabil

Áður gert

Starfsmaður tengdur í VS

Tímafærsla skráð

 

Hvar og hvernig gert

Hægt að fara í

Tímafærslur ->Tímafærslur

Yfirfara -> Tímar

Yfirfara -> Tímar dagur

 

Hrinda af stað leit eftir nafni starfsmanns og því tímabili sem skoða á tímafærslur yfir. Velja starfsmanninn sem skoða á tímafærslur hjá. Smella á i_takn.gif við þá tímafærslu sem skoða á nánar.

 

Aðgerð

Vinnuleið

Lýsing

Skoða tímafærslur

Tímafærslur -> Tímafærslur->Leita

Hægt er að skoða tímafærslur á starfsmann yfir ákveðið tímabil og einnig er hægt að skoða einstakar tímafærslur starfsmanns með því að smella á skoða nánar hnappinn.

 

 

Skoða tímafærslur starfsmanns yfir ákveðið tímabil

(Tímafærslur -> Tímafærslur)

 

timafaerslurnanar.gif

 

Dálkurinn "Vinnutími". Þegar músin er sett yfir vaktir í dálknum vinnutími þá kemur lítill kassi út frá músinni sem segir til um tegund vaktar og tímabil hennar með dagsetningum.

 

image005.jpg

 

Dálkurinn" Merking/Skýring":

Ef músin er sett yfir textann sem kemur í þennan dálk kemur lítill kassi út frá músinni með merkingum og skýringu sem skráðar hafa verið á tímafærsluna.

 

image006.jpg

 

Bakfærðar tímafærslur:

Hægt er að bakfæra vaktir og tímafærslur. Launafulltrúar hafa einir aðgang að því að bakfæra færslur í kerfinu.

Aðeins er hægt að bakfæra færslur sem eru L merktar (farnar til launakerfis). Bakfærslan er gerð í nánar myndinni (smellt á i_takn.gif táknið). Einnig er hægt að bakfæra margar færslur í einu.

 

Færslur sem eru bakfærðar fara í stöðuna Lb og bakgrunnur færslunnar verður bleikur. Bakfærslan sjálf kemur í línuna fyrir neðan og fær stöðuna S og það stendur "Bakfærsla" í dálknum "Reiknifors." Á myndunum að neðan er bæði sýnd bakfærsla á tímafærslu(stimplun) eingöngu (efri myndin) og bakfærsla á vinnutíma(vakt) og stimplun (neðri myndin).

 

Bakfærsla á tímafærslu (stimplun):

bakfaersla_timafaersla.gif

 

 

Bakfærsla á tímafærslu(stimplun) og vinnutíma:

 

Athugið: ef bakfæra á tímafærslu og vinnutíma þá er tímafærslan alltaf bakfærð fyrst.

 

bakfaersla_timi_vinnutimi.gif

 

 

Skoða útreikning á tímafærslu starfsmanns

(Tímafærslur -> Tímafærslur -> Skoða nánar)

 

Til að komast í útreikning tímafærslu er smellt á i_takn.giftáknið í tímafærslumyndinni. Þá opnast útreikningsmynd tímafærslunnar.

 

timafaerslurutreikningur.gif

 

Þar sem Vinnustund sendir ekki mánaðarlaun yfir í launakerfi þá kemur vinnuskyldan (ef hún er einhver þennan dag) alltaf í mínus efst, síðan kemur stimplun á vinnuskylduna í plús á móti.

Í myndinn hér að ofan á starfsmaðurinn vinnuskyldu frá 17:00 - 21:00, það koma því fyrst 4 tímar í mínus. Næsta færsla er stimplun á vinnutímann sem er 4 tímar og kemur því í plús á móti. Mánaðarlaunin verða því núll og flytjast ekki yfir í launakerfið.

 

Því næst eru tilteknar óreglulegar greiðslur sem starfsmaðurinn á rétt: