Vinnufyrirkomulag fyrir dagvinnu- og sveigjanlega starfsmenn

Vinnufyrirkomulag lýsir því hvernig dagvinnumenn vinna á vikugrunni (ein eða fleiri vikur).

Vinnufyrirkomulagið heldur utan um vinnuskyldu starfsmanns og þá sveigju sem starfsmaður hefur til vinnuskila.

 

Vinnufyrirkomulag er skilgreint fyrir eftirfarandi vinnutímaskipulag dagvinnumanna:

 

Einnig er hægt að skilgreina vinnufyrirkomulag fyrir tímavinnumenn.

Hver framkvæmir

Launadeildir

Tilgangur

Vinnufyrirkomulag stýrir því hve marga tíma starfsmaður vinnur á dagsgrunni og hvenær sú vinna er unnin. Þetta ræðst af starfshlutfalli starfsmanns og sveigju sem hann hefur til að skila sinni vinnu.

 

Hvar og hvernig gert

Farið í ábyrgðarsvið Stýringar og þaðan í aðgerðina Vinnufyrirkomulag.

 

Sjá einnig:

Skrá vinnufyrirkomulag á starfsmann

Skilgreining á vinnufyrirkomulögum

 

Mögulegar aðgerðir (Aðgerðirnar eru hlekkir til að komast beint í nánari upplýsingar um þær)

 

Aðgerð

Vinnuleið

Lýsing

Skoða lista/Afrita

Stýringar -> Vinnufyrirkomulag

Listi yfir skráð vinnufyrirkomulög stofnunar. Hægt er að afrita vinnufyrirkomulag með því að smella á hlekk neðst í hægra horni listans.

Skoða nánar

Stýringar -> Vinnufyrirkomulag ->Nánar->Fyrirkomulag

Velja vinnufyrirkomulag úr lista sem skoða á nánar

Breyta fyrirkomulagi

Stýringar->Vinnufyrirkomulag->Nánar->Fyrirkomulag ->Breyta

Breyta fyrirkomulagi sem til er fyrir

Skrá undirfærslur

Stýringar -> Vinnufyrirkomulag -> Nánar -> Fyrirkomulag -> Nýskrá

Skrá undirfærslur á vinnufyrirkomulag.

 

 

 

Skoða/Afrita(Stýringar -> Vinnufyrirkomulag)

 

Vinnufyrirkomulag er skilgreint niður á stofnun.

Hægt er að sía úr vinnufyrirkomulag sem eru í gildi, leita eftir heiti.

Hægt er að  velja um að birta starfsmannafjölda, þá er auðveldara að sjá hvort einhver starfsmaður sé tengdur við vinnufyrirkomulag.

 

Hægt er að afrita vinnufyrirkomulag með því að smella á hlekkinn "Afrita vinnufyrirkomulag"  sem er neðst í hægra horni listans.

Það flýtir fyrir að afrita vinnufyrirkomulag, þá afritast undirfærslurnar og hægt er að fara inn í þær og breyta þeim í stað þess að þurfa að nýskrá allar undirfærslur.

 

Í upphafi þarf þó alltaf að búa til eitt vinnufyrirkomulag frá grunni.

 

styringar_vinnufyrirkomulag.gif

 

Þegar smellt er á "Afrita vinnufyrirkomulag" (neðst til hægri)  þarf að byrja á því að velja vinnufyrirkomulag sem á að afrita og smella síðan á" Afrita" hnappinn.

Aðeins þeir sem hafa aðgang að fleiri en einni stofnun fá upp val um stofnun.

 

vinnufkl_afrita.gif

 

Þá þarf að setja inn stýringar.

 

vinnufkl_velja_afrita.gif

 

 

Heiti

Gefa þarf nýja vinnufyrirkomulaginu heiti.

Reikna aukatíma

Ef já

þá reiknast aukatímar á vinnutíma utan vinnuskyldu skv. kjarasamningum (matar- og kaffitímar). Þá er líka hægt að setja inn tíma í 'Aukatímar reiknast ekki frá' og 'Aukatímar reiknast ekki til' (stýringar í fyrirkomulagi) ef það eru einhverjir aukatímar sem eiga ekki að greiðast sjálfkrafa skv. kjarasamning.

 

Vikufjöldi

Ef starfsmenn vinna ekki alveg reglulegan vinnutíma þá segir vikufjöldinn til um yfir hve langan tíma vinnumunstur þeirra nær.

Dæmi:

Starfsmaður vinnur alltaf eins mán-fim en annan hvern föstudag vinnur hann frá 08:00 til 18:00 en hinn föstudaginn vinnur hann frá 08:00 til 14:00. Hans vinnumynstur nær því yfir tvær vikur.

Í gildi

Það er aðeins hægt að tengja starfsmenn við vinnufyrirkomulag sem er í gildi á hverjum tíma.

 

Starfshlutfall

Setja inn starfshlutfall starfsmanns. Borið saman við starfshlutfall í starfsmannakerfi þegar vinnufyrirkomulagið er tengt á starfsmann.

 

Notar sérstakt tímabil

Aðeins haka við hér ef um grunnskóla er að ræða. Þá eru búin til tímabil annars vegar tímabil fyrir starfstíma skóla og hins vegar tímabil utan starfstíma skóla.

 

Afrita undirfærslur (birtist aðeins þegar verið er að afrita)

Ef hakað við þá eru undirfærslur afritaðar líka.

 

Skrá undirfærslur  (Stýringar -> Vinnufyrirkomulag )

 

Skrá þarf undirfærslur fyrir hvert vinnufyrirkomulag þar sem skilgreindur er vinnutími niður á daga og dagategundir. Ef afritun er notuð afritast undirfærslurnar með. Þá er hægt að fara inn í þær og breyta þeim ef þarf.

Ef skrá þarf nýjar undirfærslur er smellt á plúsinn í hægra horni flipamyndar. Farið er í breytingartáknið á undirfærslunni til að breyta henni.

 

Ekki er hægt að breyta eða nýskrá undirfærslur eftir að starfsmaður hefur verið tengdur við vinnufyrirkomulagið. Þá þarf fyrst að aftengja starfsmenn, breyta vinnufyrirkomulaginu og tengja það síðan aftur við starfsmenn.

 

Sveigjanlegt vinnufyrirkomulag:

 

vinnufkl_sv_undirfaersla.bmp

 

Fastur vinnutími:

 

vinnufkl_dagv_fastur_undirfaersla.gif

 

 

Svæði

Skýring

Vikudagur

Velja vikudag

Dagategund

Velja dagategund

Aukatímar reiknast ekki frá

Aukatímar reiknast ekki til

Þessi svæði eru aðeins virk ef Reikna aukatíma er JÁ.

Segja til um á hvaða tímabili aukatímar vegna matar- og kaffitíma reiknast ekki.

Viðmiðunartími frá

Hvenær starfsmaður á að byrja eða ljúka vinnu(sveigjanlegur vinnutími)

Vinnuskylda

Vinnuskylda á dag án styttingar

Vinnutími frá

Vinnutími til

Byrjunar- og endatímar vinnutíma, fyrir dagvinnumenn með fastan vinnutíma.

Stytting(-)/lenging(+) vinnutíma í mín.

Ef d. seldir kaffitímar koma til styttingar á vinnutíma.

 

 

Skoða vinnufyrirkomulag(Stýringar -> Vinnufyrirkomulag)

 

Þessi mynd sýnir vinnufyrirkomulag fyrir dagvinnumann með fastan vinnutíma.

 

dagvinnumennmedfastanvinnutima.gif

 

Þessi mynd sýnir vinnufyrirkomulag fyrir dagvinnumenn með sveigjanlegan vinnutíma.

 

dagvinnumennmedsveigjanleganvinnutima.gif

 

Breyta vinnufyrirkomulagi(Stýringar->Vinnufyrirkomulag->Breyta)

 

Úr leitarlista þarf að smella á nafn þess vinnufyrirkomulags sem á að breyta.

Þá birtist breytingamyndin sem sést hér að neðan.

Þeir sem hafa leyfi til að breyta vinnufyrirkomulagi fá upp breytingatáknin (plúsinn og blýantinn).

 

Stýringum fyrir ofan flipamynd er breytt með því að smella á breytingatáknið efst í hægra horninu.

Til að breyta/nýskrá undirfærslur þá er smellt á skráningatáknin í flipamyndinni.

 

breyta_vfkl_upphafsmynd.gif

 

Athugið að aðeins er hægt að breyta ákveðnum svæðum eftir að vinnufyrirkomulag hefur verið tengt starfsmanni.

Ef flipinn starfsmenn birtist ekki við hlið flipans "Fyrirkomulag" þá er ekki búið að tengja neina starfsmenn.

Ekki er hægt að breyta eftirfarandi svæðum:

 

breytavinnufyrirkomulagi.gif

 

Ef breyta táknið birtist aftast í færslu þá er hægt að breyta undirfærslum.

Athugið að ekki er hægt að breyta undirfærslum eftir að búið er að tengja starfsmann við vinnufyrirkomulag.

Fyrst þarf að aftengja starfsmenn, breyta og tengja starfsmann aftur inn.