Vinnutímaskipulag segir til um hvort starfsmenn ganga vaktir í kerfinu eða vinna samkvæmt skilgreindum kjarnatíma. Grunn vinnutímaskipulag getur verið tengt á starf starfsmanns í starfsmannakerfinu (fer eftir starfsmannakerfi). Þau eru: vaktavinna, dagvinna eða tímavinna.
Í VinnuStund verður síðan að sundurliða dagvinnumenn frekar niður í dagvinnumenn með fastan vinnutíma, sveigjanlegan vinnutíma eða vinnuskyldu utan dagvinnumarka. Sú sundurliðun er gerð með því að tengja viðeigandi vinnufyrirkomulag á dagvinnumanninn í Stund.
Vinnutímaskipulag skiptist upp í eftirfarandi tegundir:
Vinnutímaskipulag |
Skýring |
Vaktavinnumenn |
Uppfylla vinnuskylduna með almennum vöktum. Hægt að setja á þá frávik frá stimplun í mín. Greidd eru álög og yfirvinna eins og kveður á um í kjarasamningum. |
Dagvinnumenn með sveigjanlegan vinnutíma |
Starfsmenn semja um að vinna ákveðinn fjölda stunda á tímabili, t.d. viku. Þannig getur starfsmaður fleytt vinnustundum á milli daga. Dæmi um þetta er starfsmaður í fullu starfi sem vinnur 36 tíma eina vikuna og síðan 44 tíma þá næstu. Vinnufyrirkomulag starfsmanns með sveigjanlegan vinnutíma lýsir því hve mörgum tímum starfsmaður þarf að skila og á hvaða tímabili. Fá greitt eftir stimplun. Verður að setja inn viðmiðunartíma. Hægt er að setja á þá frávik frá innstimplun í mín. Þessi starfsmenn kallast stundum fleytitímamenn. |
Dagvinnumenn með fastan vinnutíma |
Starfsmenn vinna ákveðinn fjölda stunda hvern dag og hafa enga sveigju í vinnuskilum eins og dagvinnumenn með sveigjanlegan vinnutíma. Starfsmenn þurfa að byrja og enda vinnu sína á fyrirfram ákveðnum tíma. Allir tímar utan umsamins vinnutíma er reiknaður sem yfirvinna og það sem vantar upp á vinnutíma kemur í mínus. Vinnufyrirkomulag dagvinnumanns lýsir því á hvaða tímum hann hefur og endar vinnu hvern dag. Hægt að setja á þá frávik frá stimplun í mín. |
Dagvinnumenn á vöktum |
Vinna óreglulega á dagvinnutíma. Uppfylla vinnuskylduna með almennum vöktum á dagvinnutíma. Fá vaktaálag á vaktir utan dagvinnutíma. Hægt að setja á þá frávik frá stimplun í mín. |
Vaktavinnumenn sem vinna ekki rauða daga |
Virkar eins og dagvinnumenn á vöktum |
Dagvinnumenn með vinnuskyldu utan dagvinnumarka |
Hafa vinnufyrirkomulag þar sem skilgreindur er fastur vinnutími á dagvinnutíma og hver vinnuskyldu utan dagvinnutíma er. Fá vaktaálag á vinnu utan dagvinnumarka. Hægt að setja á þá frávik frá stimplun í mín. |
Dagvinnumenn með breytilegan vinnutíma (ekki virkt hjá Fjársýslunni) |
Dagvinnumenn sem hafa fastan vinnutíma sem er breytilegur. Útreikningur er sá sami og hjá dagvinnumönnum með breytilegan vinnutíma en vinnutíminn er settur niður sem vaktir svo hægt sé að breyta honum. |
Tímavinnumenn í tímavinnu |
Starfsmenn hafa ekki fasta vinnuskyldu eða vinnutíma, en fá greitt eftir stimplun. Yfirvinnuvakt yfirleitt notuð til að skrá fjarvistir (veikindi). |
Tímavinnumenn á vöktum |
Hægt að setja á þá vaktir. Fá greitt eftir stimplun. Hægt að setja á þá frávik frá stimplun í mín. Hægt að skrá fjarvistir (veikindi). |
Tímavinnumenn með fastan vinnutíma |
Hafa vinnufyrirkomulag þar sem skilgreindur er fastur vinnutími þeirra. Fá greitt eftir stimplun. Hægt að setja á þá frávik frá stimplun í mín. Hægt að skrá fjarvistir (veikindi). |
Tímavinnumenn með sveigjanlegan vinnutíma |
Hefur vinnufyrirkomulag sem lýsir því hve mörgum tímum starfsmaður þarf að skila og á hvaða tímabili. Fá greitt eftir stimplun. |
Tímavinnumenn í tímav. - eftirlaunaþegar |
Fá greitt eftir stimplun. Eru á annarri launategund en tímavinnumenn í tímavinnu. |
Á vinnufyrirkomulagi þarf að skilgreina hvort reikna eigi aukatíma eða ekki. Ef reikna á aukatíma þarf að skilgreina á hvaða tímabili þeir eigi ekki að reiknast. Með aukatímum er átt við kaffi- og matartíma í yfirvinnu á kvöldin og um helgar.