Skrá aukatíma

Hver framkvæmir

Næsti yfirmaður, launadeild.

 

Tilgangur

Til að hægt sé að skrá þá aukatíma á starfsmann sem hann á rétt á samkvæmt samningi.

 

Áður gert

Starfsmaður tengdur í VS.

Aukatímar skilgreindir í stýringum.

 

Hvar og hvernig gert

Hægt að fara í

Tímafærslur ->Tímafærslur

Yfirfara -> Tímar

Yfirfara -> Tímar dagur

Hrinda af stað leit eftir nafni starfsmanns. Velja starfsmanninn sem skrá á aukatíma á. Til að skrá aukatímafærslu er smellt á hnappinn btn_aukatimi.gif.

 

 

Aðgerð

Vinnuleið

Skýring

Skrá aukatíma

Tímafærslur -> Tímafærslur -> Aukatími

Yfirfara -> Tímar/Tímar dagur -> Aukatími

 

Hægt er að skrá á starfsmann aukatíma sem eru utan vinnuskyldu, t.d. heimavinna, álag v/kennslu nýs starfsmanns o.fl.

 

 

Skrá aukatíma (Tímafærslur -> Tímafærslur -> Skrá aukatíma)

 

Smellt á hnappinn btn_aukatimi.gif sem birtir skráningarglugga aukatíma

Velja þann aukatíma sem skrá á úr vallista. Ef vallistinn er auður þá á eftir að skrá aukatíma í stýringum.

Fylltu út í skráningargluggann og smelltu á "Vista" hnappinn.

Glugganum er lokað aftur með því að smella á "Loka" hnappinn.

 

skra_aukatima.gif

 

 

Svæði

Lýsing

Dagsetning tímafærslu

Veldu dagsetningu þess dags sem skrá á aukatíma á

Aukatímar

Veldu tegund aukatíma

Tímafjöldi

Fjöldi aukatíma í klukkustundum (og mínútur í hundraðshlutum). Ef skrá á 1 tíma og 30 mínútur þá er skrá 1,5.

Merking stofnunar

Kódi til að undirflokka tímafærslur ef við á

Merking skipulagseiningar

Kódi til að undirflokka tímafærslur ef við á

Skýring

Settu inn skýringu ef við á

Staða færslu

Er færslan samþykkt, ósamþykkt, hafnað eða í bið