Skrá leyfisósk

Hver framkvæmir

Starfsmaðurinn sjálfur.

Tilgangur

Starfsmaðurinn getur sett inn beiðni um leyfi. Yfirmaður tekur afstöðu til leyfisóska og samþykkir eða hafnar óskinni.

Áður gert

Vera búinn að tengja starfsmann í VS

 

Hvar og hvernig gert

Velja leyfi í sjálfsþjónustu velja síðan Leyfisóskir vinstra megin á mynd.

 

Aðgerð

Vinnuleið

Skýring

Leyfisóskir

Leyfi->Leyfisóskir

Starfsmaður sér yfirlit yfir leyfisóskir sínar.

Skrá leyfisósk

Leyfi -> Leyfisóskir -> Nýskrá

Starfsmaður þarf að sækja um að fá að fara í leyfi, leyfisóskin er svo samþykkt af yfirmanni.

 

 

Leyfisóskir(Leyfi->Leyfisóskir)

 

Ef smellt er á Leyfisóskir birtist gluggi sem sýnir yfirlit yfir leyfisóskir starfsmannsins

Hægt er að óska eftir leyfum yfir tímabil eða hluta úr degi. Ef óska á eftir leyfi hluta úr degi þarf að skrá inn tíma.

 

Hægt er að óska eftir leyfi og skoða og breyta þeim ósamþykktu ( "Í vinnslu") leyfisóskum sem þegar hafa verið gerðar.

Listi er birtur yfir leyfisóskir sem gerðar hafa verið og hægt er að sjá stöðu þeirra, hvort leyfisóskin hefur verið samþykkt eða ekki.

 

Ef leyfisósk hefur ekki verið uppfyllt að fullu þá birtist sú dagsetning sem hefur verið breytt rauðlituð í dálkunum Dags.frá samþ. eða Dags.til samþ.

 

sjalfsthj_leyfisoskir_listi.gif

 

 

Skrá leyfisósk ( Leyfi -> Leyfisóskir -> Nýskrá)

 

Smelltu á Nýskrá hnappinn í Leyfi->Leyfisóskir.

Veldu tegund leyfis sem beðið er um úr vallista og yfir hvaða tímabil leyfisóskin nær.

 

Athugaðu að í töflunni fyrir ofan skráningargluggann getur þú séð stöðuna á hverri leyfistegund fyrir sig í dálkinum Staða til úttektar.

 

Settu nánari skýringu á leyfisóskinni í Athugasemd ef þörf er á því.

Smelltu á Vista hnappinn til að vista leyfisóskina.

Dagsetning leyfisóska er geymd, þ.e. hvenær óskin var skráð.

 

Ef hakað er við "Fá senda tilkynningu..." þá er sendur tölvupóstur á starfsmann um leið og yfirmaður tekur afstöðu til leyfisóskarinnar.

 

sjalfsthjonusta_skra_leyfisosk.gif

 

 

Svæði

Lýsing

Tegund leyfis

Af hvaða leyfistegund er leyfið tekið af

Frá kl.

Setja inn tíma leyfisóskar ef sótt er um leyfi hluta úr degi.

Tímabil dags. frá/til

Fyrsti og síðasti dagur í leyfi

Fá senda tilkynningu

Fá sendan tölvupóst þegar yfirmaður tekur afstöðu til óskarinnar

Athugasemd

Viltu skrá athugasemd á leyfisóskina?

 

 

Meira um leyfi