Tilkynningar

Hver framkvæmir

Þeir sem hafa aðganginn Tilkynningar í VinnuStund geta búið til tilkynningar.

 

Tilgangur

Birta tilkynningar til ákveðinna hópa í VinnuStund. Dæmi: Birta yfirmönnum tilkynningu sem minnir á að yfirfara og samþykkja þurfi tíma starfsmanna og búa til launabunka.

 

Áður gert

Vera búinn að tengja starfsmann í VS

 

Hvar og hvernig gert

Fara í ábyrgðasvið Ýmislegt ->Tilkynningar

 

 

Aðgerð

Vinnuleið

Skýring

Nýskrá tilkynningu

Ýmislegt->Tilkynningar->Nýskrá

Nýskrá tilkynningu frá grunni

Breyta / eyða tilkynningu

Ýmislegt->Tilkynningar->Breyta/eyða

Breyta / eyða tilkynningu

 

Nýskrá tilkynningu:

 

Setja þarf inn fyrirsögn tilkynningar og tilkynninguna sjálfa.

Setja þarf inn birtingartímabil. Tilkynningin birtist aðeins innan þessa tímabils.

Velja þarf þau aðgangshlutverk VinnuStundar sem tilkynningin á að birtast. Tilkynningin birtist þá öllum þeim sem hafa valin aðgangshlutverk.

Velja þarf stofnun, eina, margar eða allar, og sækja síðan skipulagseiningar valinnar stofnana. Athugiða að það eru ekki allir sem geta valið stofnanir.

Velja þarf skipulagseiningar, allar, eina eða margar.

Vista.

 

stofna_tilkynningu.gif

 

Þegar smellt er á Vista hnappinn birtist tilkynningin eins og hún kemur til með að líta út.

 

utlit_tilkynningar.gif

 

Breyta / eyða tilkynningu:

 

Smella á fyrirsögn tilkynningar til að opna viðkomandi tilkynningu.

 

listi_tilkynninga.gif

 

Þegar tilkynning hefur verið opnuð er hægt að breyta henni eða eyða. Það er því hægt að endurnýta sömu tilkynninguna aftur og aftur með því að breyta birtingartímabili og texta.

 

tilkynning_breyta_eyda.gif