Starfsmaður síusamningar

Hver framkvæmir

Launafulltrúar í Stund.

Tilgangur

Sía út launategundir sem ekki á að senda yfir til launakerfis.

Áður gert

Tengja skipulagseiningu í VS

Tengja launategund við stofnun

Hvar og hvernig gert

Fara í ábyrgðasvið Stýringar, aðgerðina Síusamningar. Smella á heiti síusamnings til að vinna með eða smella á plúsinn efst í hægra horninu til að nýskrá samning.

 

Síusamningar eru einfaldari en yfirvinnusamningar þar sem starfsmaður sem er á síusamningi fær ekkert greitt á launategund síusamnings.

 

Launafulltrúar geta skráð síusamninga. Síusamningar koma í veg fyrir að sú launategund sem skráð er í síusamningnum fari yfir til launkerfis.

Síusamningur er tengdur við starfsmenn.

 

Hægt er að skrá síusamninga fyrir allar launategundir nema yfirvinnu.

 

styringar_siusamningar.gif

 

Í skráningarglugga síusamnings er hægt að breyta síusamningi með því að smella á breyta táknið efst í hægra horninu.

Eingöngu er hægt að breyta samningi á meðan enginn starfsmaður er tengdur við hann, eftir það hverfur breyta táknið.

 

Í flipanum "Starfsmenn" er hægt að sjá hvaða starfsmenn eru tengdir við samninginn.

 

siusamningur_breyta.gif

 

Hér að neðan sést dæmi um starfsmann sem er með 2 síusamninga á sér, "Staðarvakt" og "Vaktaálag I". Hann fær ekki greiddar þessar launategundir á tímabilinu 14.04.2014 - 29.05.2014.

 

starfsmadur_siusamningar.gif

 

Starfsmaður er tengdur við síusamning með því að smella á Nýskrá hnappinn í flipanum (starfsamaður->Starfsmaður->flipnn "Síusamningar".

Síusamningur tekur gildi frá og með Dags.frá.

Til að loka síusamningi er farið í breyta táknið og sett inn Dags.til.