Starfsmenn í sjálfsafgreiðslu og yfirmenn (fyrir sína starfsmenn)
Starfsmenn skrái annað en vinnu og notkun á tækjum.
Fara í ábyrgðasvið Tímafærslur -> Tímafærslur.
Í tímafærslumyndinni er Verkskráning valin. Þar er síðan smellt á táknið til að komast í verkskráningarmyndina.
Smellið
hér til að sjá nánar.
Skráning á öðru en vinnu og notkun á tækjum er gerð í myndinni hér fyrir neðan.
Smelltu á flipann "Annað".
Verknúmer er skráð og útfrá því valinn verkhluti, hægt er að smella á vasaljósið til að leita að fá lista yfir verkhluta sem tilheyra þessu verknúmeri.
Í dálkinum "Annað" er valið úr vallista hvað eigi að skrá. Þegar farið er með músina yfir atriði vallistans birtist í hvaða einingu magn er skráð.
Dæmi: Akstur er talinn í stykkjum en dagpeningar í dögum.
Skráðu magn í magndálkinn og skýringu ef þess þarf.
Vistaðu skráninguna með því að smella á hnappinn "Vista skráningu" neðst í myndinni.