Magnskráning í verkbókhald

Hver framkvæmir

Starfsmenn í sjálfsafgreiðslu og yfirmenn (fyrir sína starfsmenn)

Tilgangur

Hægt að skrá sama verknúmer yfir marga daga í einu í stað þess að þurfa að skrá einn og einn dag í einu. Dæmi þegar skrá á sumarorlof.

Hvar og hvernig gert

Fara í ábyrgðasvið Tímafærslur -> Tímafærslur. Í tímafærslumyndinni er Verkskráning valin. Þar er síðan smellt á verkskraning_takn.giftáknið til að komast í verkskráningarmyndina. Smellið hér til að sjá nánar.

 

Skráning á vinnu í verkbókhaldið er framkvæmd í myndinni hér fyrir neðan.

 

Velja þarf flipann "Skrá vinnu", ef hann er ekki valinn nú þegar.

 

verkskraning_magn.gif

 

Hér þarf að smella á hnappinn Magnsk.neðst í vinstra horninu til að komast inn í magnskráningargluggann.

 

verkskraning_magnskraning_vinnusk.gif

 

Velja þarf tímabil, ef hakað er í "Fylla upp í vinnuskyldu" þá þarf ekki að skrá fjölda tíma heldur er fyllt upp í vinnuskyldu með völdu verknúmeri og verkhluta yfir valið tímabil.

Velja þarf verknúmer og verkhluta. Setja þarf tímafjöld ef ekki á að uppfylla vinnuskylduna.

 

verkskraning_fylla_vsk.gif