Skrá fjarvist

Hægt er að skrá fjarvistartegund á tímafærslu.

Hver framkvæmir

Starfsmaðurinn sjálfur.

Tilgangur

Svo starfsmaður geti gefið skýringu á því hvers vegna hann var ekki við vinnu á tilskyldum tíma.

Áður gert

Vera búinn að tengja starfsmann í VS

Vinnufyrirkomulag þarf að vera tengt á starfsmanninn.

 

Hvar og hvernig gert

Veldu Tímafærslur í sjálfsþjónustu. Veldu tímabil og smelltu á Leita hnappinn.

Veldu þá tímafærslu sem skrá skal fjarvistartegund á. Það er hægt með því að annað hvort smella á  timaskraning_hnappur.gif eða á nýskráningarhnappinn í vinnutímadálkinum.

 

Skrá fjarvist (Tímafærslur -> Nýskrá)

 

 

sjalfsth_timafaerslur.gif

 

Svæði

Lýsing

Dagsetning stimplunar

Veldu dagsetningu þess dags sem breyta á tímastiplunum á.

Leiðrétt stimplun inn/út

Leiðréttu inn- og/eða útstimplun.

Fjarvist/viðverutegund

Veldu úr fellilistanum ef við á.

Merking stofnunar

Tímafærslumerkingar stofnunar

Merking skipulagseiningar

Tímafærslumerkingar skipulagseiningar

Skýring

Settu inn skýringu ef við á.

 

 

lightbulb.gifÁbending: Ef fylla á upp í vinnuskyldu dagsins þá er hægt að holufylla með því að skrá aðeins dagsetningu og fjarvist. Þá fyllir kerfið sjálfkrafa upp í það sem vantar.

Ef skrá á fjarvist á marga daga þá er einungis skráð dagsetning frá og til en enginn tími. Þá fyllir kerfið upp í vinnuskyldu valinna daga með fjarvistinni.

 

 

Aftur í gátlista