Breyta tímum í leyfi
Sum leyfisréttindi eru áunnin með því að breyta
vinnustundum í leyfi.
Þetta á t.d. við um leyfisréttindin Uppsöfnuð
yfirvinna, þar er hægt að breyta yfirvinnu í leyfi.
Hver framkvæmir
Starfsmaðurinn sjálfur.
Tilgangur
Starfsmaður getur flutt hluta af yfirvinnu
yfir í leyfi.
Áður gert
Vera
búinn að tengja starfsmann í VS
Hvar og hvernig gert
Fara í ábyrgðasvið Leyfi og smella síðan á
þann hnapp sem á við það leyfi sem flytja á í leyfi.
Sjá á myndinni hér fyrir neðan.

Breyta tímum
i leyfi (Leyfi->Færa
tíma í leyfi)

Þegar launakeyrslan er keyrð
þá er tímum breytt í leyfi. Ef búið er að skrá
fleiri tíma í beiðni en voru unnir þá er ekki skráður
meiri leyfisréttur en starfsmaður hafði unnið sér
inn. Einnig er í sumum leyfisréttindum þak á
hversu mörgum tímum starfsmaður má breyta í leyfi
á ári.
|
|
Beiðnir um að færa tíma í
leyfi gilda fyrir uppgjörstímabilið, ef starfsmaður
ætlar líka að breyta tímum í leyfi á næsta uppgjörstímabili
þá þarf hann að senda inn nýja beiðni.
|
|
ATH:
Ef alltaf á að breyta yfirvinnu
í leyfi þá í stað þess að skrá beiðni fyrir hvert uppgjörstímabil
er hægt að skilgreina yfirvinnusamning sem sér sjálfkrafa
um að breyta yfirvinnu í leyfi þegar bunki er stofnaður.
|