Undir Stýringar -> Fjarvistategund er haldið utan um allar fjarvistategundir sem til eru í kerfinu.
Á allar fjarvistir starfsmanna þarf að skrá fjarvistategund til að tryggja að réttir tímaútreikningar séu sendir til launakerfis.
Ef fjarvist hefur verið skráð á starfsmann er ekki hægt að skrá á hann vakt á sama tíma eða handskrá stimplun/tímafærslu.
Fjarvistategundir geta haft nokkrar stýringar fyrir útreikning á tímum starfsmanna.
Réttindi ávinnast í fjarveru:
Segir til um það hvort leyfisréttindi teljast meðan að fjarvistategund er skráð.
Dæmi: Réttindi reiknast þegar starfsmaður er skráður í orlof eða veikindi. Réttindi reiknast ekki ef starfsmaður er skráður með óheimila fjarvist.
Reiknast einungis á vinnuskyldu:
Stýrir því hvort fjarvistategund reiknist á vinnuskyldu eða alla skipulagða vinnu.
Dæmi: Orlof reiknast á vinnuskyldu en veikindi á alla skipulagða vinnu.
Reikna álag:
Stýrir því hvort reikna eigi þau álög (t.d. vaktaálag) á vinnutíma sem starfsmaður ætti að fá ef hann mætti til vinnu.
Álag er reiknað á veikindaskráningar en ekki leyfisskráningar.
Reikna kaffitíma vaktavinnumanna:
Stýrir því hvort vaktavinnumaður fái greidda fasta kaffitíma í fjarvist.
Dæmi: Í fjarvist vegna veikinda barns eru kaffitímar ekki greiddir, en í fjarvist vegna veikinda starfsmanns eru kaffitímar greiddir.
Flokkur fjarvista :
Flokkur fjarvista hefur einungis áhrif á útreikning út úr stökum tímafærslum ef fjarvistin sem skráð er tilheyrir flokknum óleyfileg fjarvist.
Þá er dregið af starfsmanni sá tímafjöldi sem er skráður á þeirri launategund og hægt er að skrá inn margföldunarstuðul á frádrættinum.
Skráningarleyfi fjarvistategundar stýrir því hverjir hafa leyfi til að skrá á sig fjarvistina.
Skráningarleyfi starfsmanns þarf að vera jafnhátt eða hærra en skráningarleyfi fjarvistartegundar til að starfsmaðurinn geti skráð á sig fjarvistartegund.
Skráningarleyfi er tala á bilinu 1 til 5
Almennir starfsmenn hafa yfirleitt skráningarleyfi 1
Yfirmenn hafa oftast skráningarleyfi 3
Fjarvistategundir má finna undir Stýringar -> Fjarvistategund.
Meðal aðgerða eru:
Skoða fjarvistategund
Fara í Stýringar -> Fjarvistategund og smella á heiti fjarvistategundar til að skoða nánar.

Nýskrá fjarvistategund
Fara í Stýringar -> Fjarvistategund og smella á plúsinn efst í hægra horni yfirlitsmyndar fjarvistategunda.

Skýring á svæðum í skráningarmynd.
|
Svæði |
Skýring |
|
Heiti |
Skammstöfun á fjarvistategund. |
|
Lýsing |
Nánari lýsing á fjarvistategund. |
|
Í gildi |
Hægt er að taka fjarvistategund úr gildi. |
|
Flokkur |
Fjarvistategund tilheyrir ákveðnum flokki. Flokkar fjarvista eru skilgreindir miðlægt. |
|
Stýrir því hvaða starfsmenn mega skrá fjarvist. Starfsmaður má skrá fjarvistategundir sem hafa lægra eða sama skráningarleyfi og starfsmaðurinn. Í Upplýsingum um starfsmann er hægt að sjá hvaða skráningaleyfi hann hefur. |
|
|
Réttindi ávinnast í fjarveru |
Ávinnast leyfisréttindi í fjarveru? |
|
Reiknast einungis á vinnuskyldu |
Reiknast fjarvist á vinnuskyldu eða alla skipulagða vinnu? |
|
Reikna álag |
Á að reikna álag í fjarveru? |
|
Reikna kaffitíma vaktavinnumanna |
Á vaktavinnumaður að fá greidda kaffitíma í fjarveru? |
|
Launategund |
Hvaða launategund á að tengja við fjarvistategund (ef við á)? |
|
Veikindaréttur |
Hvaða veikindaréttur er tengdur fjarvistategund (ef við á)? |
|
Leyfistegund |
Hvaða leyfistegund er tengd fjarvistategund (ef við á)? |
|
Má óska leyfis |
Má starfsmaður óska eftir leyfi/fjarvist í fjarvistasóskum? |
|
Litur |
Hægt að setja mismunandi lit á fjarvistir, sést í yfirfara fjarvistir. |
Breyta/eyða fjarvistategund
Fara í Stýringar -> Fjarvistategund og smella á heiti fjarvistategundar sem breyta á eða eyða.
Ef fjarvistategundin hefur verið notuð í tímaskráningu er ekki hægt að eyða henni og ekki hægt að breyta öllum stillingum hennar.
Ef ekki á að nota fjarvistategund lengur er þó hægt að taka hana úr gildi. Skýringar á svæðum skjámyndar má finna í töflu hér að ofan.
