Tengja fæðisfé

Hægt er að tengja fæðisfé á stofnun/fyrirtæki, skipulagseiningu eða starfsmann.

 

Ef fæðisfé er eingöngu tengt á stofnun gildir sú regla fyrir þá starfsmenn sem eru með "Já" í "Fæðifé" á vinnufyrirkomulagi.

 

Ef mismunandi reglur eru um fæðisfé á skipulagseiningum þá er hægt að tengja reglur niður á skipulagseiningu.

Áður en hægt er að tengja fæðisfé við skipulagseiningu þarf að vera til regla fyrir fæðisfé sjá Skilgreina fæðisfé.

 

Eftir að búið er að tengja fæðisfé á skipulagseiningu þá reiknast fæðisfé  samkvæmt reglunni á þá starfsmenn skipulagseiningar sem eru með "Já" í svæðinu "Fæðisfé" á vinnufyrirkomulagi.

 

Ef reglur um fæðisfé eru mismunandi niður á starfsmenn þarf að tengja reglu um fæðifé á starfsmann og setja "Já" í "Fæðisfé" á vinnufyrirkomulagi.

 

Tengja fæðisfé á stofnun

Fara í Stýringar->Stofnun/Fyrirtæki, flipinn Fæðisfé, Nýskrá hnappur.

Tengja fæðisfé á skipulagseiningu

Fara í Stýringar->Skipulagseining. Velja skipulagseiningu og fara í flipann Fæðisfé, Nýskrá hnappur.

Ef fæðisfé er skráð hér yfirskrifar það fæðisfé á stofnun (ef regla um fæðisfé er til þar).

Tengja fæðisfé á starfsmann

Fara í Starfsmenn->Starfsmenn. Velja starfsmann og fara í flipann Fæðisfé, Nýskrá hnappur.

Ef fæðisfé er skráð hér yfirskrifar það fæðisfé á stofnun og skipulagseiningu (ef reglur um fæðisfé eru til þar).

 

 

 

Nýskrá hnappur - velja reglu og skrá gildisdagsetningar.

 

 

 

Loka reglu

Finna fæðisfé reglu á stofnun/fyrirtæki, skipulagseiningu eða starfsmanni.

Breyta tákn aftast í línu þar er eingöngu hægt að skrá lokadag í gildistímabil og má ekki vera afturvirkt.