Leyfisréttindi

 

Fyrir hverja leyfistegund geta verið til mörg leyfisréttindi. Sem dæmi er orlofsávinnsla með mismunandi hætti eftir kjarasamningum og því eru til mörg leyfisréttindi fyrir leyfistegundina Orlof.

Hver starfsmaður getur aðeins verið með ein leyfisréttindi fyrir hverja leyfistegund. Það er, sami starfsmaður getur ekki verið með tvenns konar orlofsréttindi í gildi á sama tíma.

 

 

 

Svæði

Lýsing

Kóði

Stutt heiti leyfisréttinda

Lýsing

Nánari lýsing á leyfisréttindum

Tímabil ávinnslu

Ávinnslutímabil á forminu ddmm

Viðmiðunardagur ávinnslu

Ekki notað

Tímabil úttektar

Úttektartímabil leyfisréttinda á forminu ddmm

Má taka leyfi utan tímabils

Er leyfilegt að taka út leyfi utan skilgreinds úttektartímabils (skilgreint fyrir ofan)

Álag utan tímabils

Ef reikna á álag (lengingu) þegar leyfi er tekið utan úttektartímabils er prósentan skilgreind hér.

Fyrnist milli ára

Ef já þá fyrnist inneign á milli úttektartímabila

Launategund greidd

Ef senda á leyfi sem greitt er út yfir til launa er launategundin skráð hér

Launategund staða

Ef senda á stöðu leyfisréttinda yfir til launakerfis er launategund fyrir stöðuna skilgreind hér

Launategund ávinnslu

Ef senda á stöðu ávinnslu yfir til launakerfis er launategundin fyrir ávinnsluna skilgreind hér

Gildir frá

Leyfisréttindi gilda frá

Gildir til

Lokadagur ef ekki á að nota leyfisréttindi lengur. Yfirleitt tómt nema réttindi séu úrelt.

 

Eftir að búið er að fylla í skráningarsvæðin er smellt á Vista hnappinn.

 

Næst þarf að setja forsendur á leyfisréttindin. Smellt er á heiti í lista og forsendur skráðar í flipann "Forsendur". Þ.e. með hvaða hætti á ávinnsla sér stað og hámark flutt milli ára ef við á.

Í flipanum "Samningar" er hægt að sjá á hvaða samninga búið er að tengja réttindin.

 

 

 

 

Tengja leyfisréttindi við samning

Eftir að búið er að skilgreina leyfisréttindi þarf að tengja þau á samning.

Það er gert með því að fara í Samningar->Velja samning->Flipinn Leyfisréttindi

 

 

Ný leyfisréttindi eru tengd við samning með því að smella á Nýskrá hnappinn neðst í hægra horninu.

Til að breyta tengingu er smellt á blýantinn fyrir aftan viðkomandi leyfisréttindi.

 

Dálkurinn Fyrir alla á samningi:

Já - þá gilda viðkomandi leyfisréttindi sjálfkrafa fyrir alla starfsmenn á samningi.

Nei - þá þarf að tengja viðkomandi leyfisréttindi á hvern og einn starfsmann sem hefur þessi réttindi. Það gerist ekki sjálfkrafa. Gert í leyfismynd viðkomandi starfsmanns. Sjá nánar hér.

 

Leyfi sem ekki eru ávinnsluleyfi birtast hjá tímavinnumönnum ef kjarasamningur segir að þau eigi að gilda fyrir alla á samningi. Dæmi um þannig leyfi eru Áunnir hvíldartímar.

Einnig er hægt að handskrá leyfi á tímavinnumenn.

Lýsing á leyfisréttindum

Orlof

Gildir oftast fyrir alla á samningi og þarf að tengja við kjarasamning en ekki sérstaklega við starfsmenn.

Ávinnsluár er frá 1. maí til 30. apríl ár hvert.

Réttur breytilegur eftir lífaldri eða starfsaldri skv. ákvæðum viðkomandi kjarasamnings. Ávinnsla í klukkustundum eftir starfshlutfalli og mánaðarfjölda í starfi á ávinnsluári og skv. ákvæðum viðkomandi kjarasamnings. 

Hægt er að stilla fjarvistategundir þannig að orlof ávinnist ekki (svæðið Réttindi ávinnast í fjarveru), t.d. er yfirleitt ekki ávinnsla á orlofi í launalausu leyfi og ávinnsla skerðist því ef að starfsmaður hefur verið í launalausu orlofi á tímabili.

 

Skerðing á ávinnslu

Ef starfsmaður er skráður í fjarvist án ávinnslu orlofs (t.d. launalaust leyfi) þá er reiknuð út lækkun á ávinnslu.

Formúlan sem er notuð er eftirfarandi:

 

Lækkun ávinnslu á dag = ((skráð fjarvist án ávinnslu / 8) / 21.67) * ávinnsla á mánuði

 

Dæmi:

A. starfsmaður í 80% starfi með 16 tíma í ávinnslu á mánuði, fjarvist skráð í 6 tíma

((6,4/8) / 21.67 )* 16 = 0.5907 (lækkun á dag)

Fyrir eina viku (5 virka daga) væri lækkunin 2,95 tímar

 

B. Starfsmaður í 100% starfi með 16 tíma í ávinnslu á mánuði

((8/8) / 21.67) * 16 = 0,7383 (lækkun á dag)

Fyrir eina viku (5 virka daga) væri lækkunin 3,69 tímar

 

Lækkun á ávinnslu er birt í leyfismynd starfsmanns í ávinnslumyndinni, dálkurinn heitir "Lækkun á ávinnslu". Hægt er að komast í þessa mynd með því að smella á hlekkinn í dálkinum "Ávinnsla" í leyfismynd starfsmanns.

 

Álag á orlof

Orlof sem er tekið utan sumarorlofstímabils (úttektartímabil) lengist um 25%. Reikna skal orlofstökuna styttri sem lengingu nemur en ekki bæta við orlofstímann, orlofstökutíminn er talinn sem 80% af þeim tíma sem er tekinn.

 

Dæmi:

Starfsmaður tekur 4 daga í orlof.

40 stunda vinnuvika á kjarasamningi.

Orlofið er 32 stundir.

40 * 4/5 = 32 timar.

32/5 = 6,4 dregnir af hverjum heilum degi í stað 8 tíma.

 

 

Dæmi um útreikning á orlofsrétti ef starfsmaður var ekki í starfi fullan mánuð:

Hver dagur mánaðar gefur rétt sem er: (fjöldi almanaksdaga annarra en laugardaga og sunnudaga * orlofsréttur í tímum * starfshlutfall) / 21,67

Starfsmaður sem ætti rétt til orlofs sem næmi 192 stundum á ári miðað við fullt árstarf en byrjaði 15. janúar áynni sér rétt til launaðs orlofs þannig:

Í janúar 13 dagar / 21,67 * 100% * 16 = 9,60, febrúar, mars og apríl 3 * 16 = 48 stundir, réttur til orlofstöku 1. maí  =57,60

  

 

Helgidagafrí

Gildir ekki fyrir alla á samningi og þarf því að tengja sérstaklega við starfsmenn auk þess að tengja við kjarasamning.

Ávinnsluár 1. janúar til 31. desember.

 

Réttur til frítöku allt að hámarki 88 stundir miðað við fullt starf í vaktavinnu allt ávinnsluárið (er 96 stundir í einstaka kjarasamningum). Ávinnsla í klukkustundum eftir starfshlutfalli og mánaðafjölda í starfi á ávinnsluári, ávinnsla á mánuði er 7,33 stundir. 

 

Frí ávinnst í veikindum en ekki er ávinnsla í fæðingarorlofi, námsleyfi eða öðrum leyfum launuðum eða ólaunuðum.

Frí er valkvætt og ef starfsmenn ætla að breyta vali úr frítöku í greiðslureglu þarf hann að gera það fyrir 1. desember næsta ár á undan ávinnsluári.

 

Frí skal taka út næsta ár eftir að það er áunnið. Frí fyrnist ekki.

 

Þegar verið er að skrá leyfistegundina 'helgidagafrí' á starfsmann og hann er með bætingu skráða á virkt vinnufyrirkomulag þá kemur villumelding því ekki á að vera hægt að vera með hvoru tveggja, bætingu og helgidagafrí.

 

 

Hluti úr mánuði reiknaður hlutfallslega þannig: (fjöldi almanaksdaga annarra en laugardaga og sunnudaga) / 21,67 = hlutfall úr mánuði.

  

Frí vegna bakvakta

Gildir ekki fyrir alla á samningi og þarf því að tengja sérstaklega við starfsmenn auk þess að tengja við kjarasamning.

Ávinnsluár 1. janúar til 31. desember.

Greiðslur fyrir bakvakt er hægt að breyta í frí vegna áunninna bakvaktatíma:

 

 

 

Bakvaktafrí

Getur eingöngu átt við á þeim stofnunum/deildum/sviðum þar sem reglulegar bakvaktir eru skipulagðar allt árið um kring. Gildir ekki fyrir alla á samningi og þarf því að tengja sérstaklega við starfsmenn auk þess að tengja við kjarasamning.

Ávinnsluár 1. janúar til 31. desember.

Réttur til frítöku er mismunandi eftir kjarasamningum, annars vegar að hámarki 80 stundir miðað við 1200 klst á bakvakt allt ávinnsluárið og hins vegar 96 stundir fyrir 1440 klst á bakvakt allt ávinnsluárið. Ávinnsla er í klukkustundum.

 

 

Ávinnsla er í klukkustundum og er sama hlutfall af 80 og sá fjöldi bakvaktastunda á ávinnsluári er af 1200 t.d. 600 bakvaktarstundir / 1200 = 50%, það * 80 stundir = 40 stundir í frí miðað við heilt ávinnsluár.

Ef 600 stundirnar eru fyrir 6 mánuða starfstíma verða áunnar stundir 40 * 6/12 = 20 stundir.

Ef rétturinn byggir á starfshlutfalli: Starfsmaðurinn er 600 klst á bakvakt og vinnur 75% starf. Útreikningur: Gæsluvaktarfrí réttur = (600/1200) * 80 klst * 75% = 30 klst.

  

Uppsöfnuð yfirvinna

Gildir ekki fyrir alla á samningi og þarf því að tengja sérstaklega við starfsmenn auk þess að tengja við kjarasamning.

Ávinnsluár 1. janúar til 31. desember. 

Starfsmaður og yfirmaður geta gert samning um að starfsmaður taki yfirvinnu sína út í fríi. Í sumum kjarasamningum er yfirvinnuálag greitt á allt að 40 tíma (5 daga) á ári miðað við fullt starf og þá er einn tími í fríi á móti einum tíma í yfirvinnu, en á öðrum er hver breyttur yfirvinnutími margfaldaður með skráðum margföldunarstuðli (ávinnsla per tíma á launategund)

 

 

 

Skýringarmynd við skráningarmynd uppsafnaðrar yfirvinnu.

 

 

 

 

Heiti dálks

Lýsing

Notkun

Ávinnsla á hvern unninn tíma

Margföldun á launategund. Dæmi: 1.4 í þessum dálki þýðir að flytja eigi 1.4 tíma í leyfi fyrir hvern yfirvinnutíma. Yfirvinnuálag ekki greitt.

Notað þegar flytja á yfirvinnu í leyfi en ekki greiða yfirvinnuálag.

Hámarksfjöldi tíma (klst) með margföldun

Hámark tíma sem má margfalda. Dæmi: 40 í þessum dálki þýðir að aðeins má margfalda yfirvinnu upp að 40 tímum á ári. Eftir það flyst aðeins tími á móti tíma í yfirvinnu

Notað þegar flytja á yfirvinnu í leyfi en ekki greiða yfirvinnuálag.

Launategund

Tilgreint hvaða launategund samningurinn meðhöndlar.

Alltaf, samningurinn meðhöndlar aðeins þessa launategund

Tímar færast á launategund

Yfirvinnuálag greitt á þá launategund sem skilgreind er hér.

Notað þegar greiða á yfirvinnuálag á yfirvinnu sem flutt er í leyfi.

Hámarksfjöldi tíma sem greitt er álag fyrir (klst)

Hámark tíma sem greiða á yfirvinnuálag á. Dæmi: 40 í þessum dálki þýðir að greiða á yfirvinnuálag á móti 40 yfirvinnutímum sem fluttir eru í leyfi. Eftir það er aðeins fluttur tími á móti tíma í leyfi en ekkert yfivinnuálag greitt.

Notað þegar greiða á yfirvinnuálag á yfirvinnu sem flutt er í leyfi.

Hámarksávinnsla(klst) (ef tómt þá heldur ávinnsla áfram án álags eða margföldunar)

 

Notað ef setja á hámark á það hver marga tíma má flytja í leyfi án álags eða margföldunar.

Reiknast hlutfallslega

Á að reikna réttindi útfrá starfshlutfalli eða ekki.

Alltaf, segir til um hvort ávinnsluréttindin skerðist við hlutastörf.

 

 

Geðdeildarfrí

Gildir ekki fyrir alla á samningi, gildir einvörðungu fyrir félagsmenn í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og þarf því að tengja sérstaklega við starfsmenn auk þess að tengja við kjarasamning.

Ávinnsluár 1. janúar til 31. desember.

Réttur til frítöku alltaf að hámarki 64 stundir miðað við fullt starf allt ávinnsluárið.

Ávinnsla í klukkustundum eftir starfshlutfalli og mánaðarfjölda í starfi á ávinnsluári, ávinnsla á mánuði er 5,33 stundir. 

Ekki er ávinnsla í samfelldum veikindum umfram 14 daga, fæðingarorlofi, námsleyfi eða öðrum leyfum launuðum eða ólaunuðum.

Frí skal taka út næsta ár eftir að það er áunnið.

Ekki er heimilt að flytja ávinnslu á milli ára og fyrnist því ef það er ekki tekið.

 

Röntgenfrí

Gildir ekki fyrir alla á samningi, gildir einvörðungu fyrir félagsmenn í Félagi geislafræðinga eða í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og þá félagsmenn sem starfa á röntgen-, geislaeðlisfræði- og krabbameinsdeildum og þarf því að tengja sérstaklega við starfsmenn auk þess að tengja við kjarasamning.

Ávinnsluár 1. janúar til 31. desember.

 

Félag geislafræðinga:

Réttur til frítöku er 80 stundir fyrir fullt starf allt ávinnsluárið og hlutfallslega fyrir þá sem eru í hlutastarfi.  Ekkert frí er fyrir skemmri starfstíma. Ekki er ávinnsla í samfelldum veikindum umfram 14 daga, fæðingarorlofi, námsleyfi eða öðrum leyfum launuðum eða ólaunuðum.

Frí skal taka út næsta ár eftir að það er áunnið.

Ekki er heimilt að flytja ávinnslu á milli ára og fyrnist því ef það er ekki tekið.

 

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga

Réttur til frítöku er allt að 112 stundir á ári miðað við fullt starf allt ávinnsluárið og hlutfallslega fyrir starfshlutfall og starfstíma.

Ávinnsla er í klukkustundum og er hlutfall af 112 miðað við starfshlutfall og starfstíma.  Starfsmaður sem er í 50% ávinnur sér 56 stundir og ef hann starfaði í hálft ár þá 28 stundir.

Ekki er ávinnsla í samfelldum veikindum umfram 14 daga, fæðingarorlofi, námsleyfi eða öðrum leyfum launuðum eða ólaunuðum. Frí skal taka út næsta ár eftir að það er áunnið.

Ekki er heimilt að flytja ávinnslu á milli ára og fyrnist því ef það er ekki tekið.

 

Áunnir hvíldartímar

Gildir yfirleitt fyrir alla á samningi, þarf að tengja við kjarasamning.

Við brot á hvíldartíma er hægt að veita starfsmönnum frí í staðinn. Brot á hvíldartíma geta verið:

 

 

 

Námsleyfi

Námsleyfi gilda ekki fyrir alla á samningi og þarf því að tengja við við hvern og einn starfsmann.

Hægt að loka fyrir að hægt sé að greiða út námsleyfi (hægt að stýra niður á fleiri leyfistegundir).

 

 

 

Sumarlaun

Sumarlaun eru leyfisréttindi notuð fyrir kennara og annað starfsfólk grunnskóla sem hafa lengri vinnuskyldu á starfstíma skóla og safna með því "sumarlaunum".

Þ.e. starfsárið samanstendur af viðveru á vinnustað, orlofi, sumarlaunum og endurmenntun. Orlof, sumarlaun og endurmenntun dekka sumarfrí og önnur skólafrí.

 

 

Endurmenntun

Endurmenntun eru leyfisréttindi notuð til þess að skrá símenntun kennara og annars starfsfólks í grunnskólum.

Frá og með 1.8.2021 er hægt að nota endurmenntun með mismunandi margföldunarstuðlum eftir því hvenær endurmenntun á sér stað.

Ef endurmenntun á sér stað utan starfstíma skóla þá er stuðull endurmenntunar 1 þ.e. tími á móti tíma.

Á virkum dögum á starfstíma skóla er stuðullinn 1,33 en athugið þó að ef endurmenntun á sér stað á dagvinnutíma starfsmanns, þá ber að skrá fjarvistina sem Námskeið, ekki endurmenntun.

Um helgar á starfstíma skóla er stuðullinn 1,44.

 

 

Ef nota á endurmenntun með stuðlum, þá þarf að skipta um leyfisréttindi í Starfsmenn - Leyfi og velja réttindi með margföldunarstuðli.