Yfirvinna 1 og 2 - 17- 8 regla og yfirvinna 2 greidd eftir að 100% viðveru (skv. vinnufyrirkomulagi) hefur verið skilað

Breytingar á yfirvinnuákvæði kjarasamninga 2020

Þessi regla gildir hjá Sveitarfélögum, nema Reykjavíkurborg.

 

Í mörgum kjarasamningum hefur verið samið um breyttan útreikning á yfirvinnu.

Annars vegar  er greitt fyrir vinnu allt að fullu starfi, Yfirvinna 1, og hins vegar fyrir yfirvinnu umfram fullt starf, Yfirvinna 2.

Samkvæmt þessarri reglu er tekið mið af styttingu vinnuvikunnar þegar talað er um fullt starf og getur því verið allt frá 38:55 stundun á viku (m.v. 13 mínútur á dag) til 36 stunda (miðað við fulla styttingu).

Ef yfirvinna er unnin utan dagvinnutíma, þ.e. utan 8-17 á virkum dögum, þá greiðist hún alltaf sem yfirvinna 2, óháð vinnuskilum á tímabilinu.

Í Vinnustund er Yfirvinna 2 = Yfirvinna.


Enn sem komið er gildir ákvæðið einungis fyrir dagvinnufólk.

 

Viðvera á viku

Til þess að Vinnustund viti hvað er fullt starf hjá hverjum og einum starfsmanni þá hefur verið bætt við svæði á vinnufyrirkomulög sem heitir Viðvera á viku.

Nauðsynlegt er að skrá í þetta svæði til þess að yfirvinna 1 og 2 reiknist rétt.

Athugið að ef starfsmaður er í hlutastarfi þá á að skrá viðveru í hlutastarfi.

Dæmi: starfsmaður í 50% vinnu.

Vann áður 20 stundir á viku.

Eftir styttingu vinnur starfsmaðurinn 18 stundir á viku.

Viðvera á viku er skráð 18 (athugið er skráð í hundraðshlutum).

 

 

Dæmi 1 - Fullt starf

Starfsmaður er í 100% starfi.

Samið hefur verið um styttingu vinnuviku um 13 mínútur á dag og er því viðveruskylda starfsmanns 38 klst. og 55 mínútur á viku.

Skrá þarf 38,92 klst. í svæðið Viðvera á viku á vinnufyrirkomulagi starfsmanns.

Starfsmaður vinnur að jafnaði 4 yfirvinnutíma á viku á uppgjörstímabilinu (vinna umfram viðveruskyldu), 2 á dagvinnutíma og 2 utan dagvinnutíma.

Heildar vinnuskil eru 42 klst og 55 mínútur á viku.

Þær 2 klst. sem unnar eru utan dagvinnutíma greiðast sem yfirvinna vegna 17-8 reglu.

Þær 2 klst. sem unnar eru á dagvinnutíma greiðast einnig sem yfirvinna þar sem viðveruskylda er uppfyllt.

 

Dæmi 2 - Hlutastarf

Starfsmaður er í 80% starfi.

Samið hefur verið um styttingu vinnuviku um 12 mínútur á dag og er því viðveruskylda starfsmanns 31 klst. á viku.

Skrá þarf 31 klst. í svæðið Viðvera á viku á vinnufyrirkomulagi starfsmanns (eða 38,75 uppreiknað m.v. fullt starf ef verið er að nota starfshlutfall stýrir vinnutíma, sjá hér).

Starfsmaður vinnur að jafnaði 4 yfirvinnutíma á viku á uppgjörstímabilinu (vinna umfram viðveruskyldu), 2 á dagvinnutíma og 2 utan dagvinnutíma.

Heildar vinnuskil eru 35 stundir á viku.

Þær 2 klst. sem unnar eru utan dagvinnutíma greiðast sem yfirvinna vegna 17-8 reglu.

Þær 2 klst. sem unnar eru á dagvinnutíma greiðast sem yfirvinna 1 af því 38,75 stundum hefur ekki verið náð.

 

Útreikningur

Útreikningur í Vinnustund miðast við heildartímafjölda á uppgjörstímabili deilt með vikufjölda á uppgjörstímabili.

Dæmi: 30 daga tímabil er með 30/7 = 4,2857 vikum og vinnuskylda á því tímabili (m.v. 40 stunda vinnuviku) er 40*4,2857 = 171,43 stundir. Tímar umfram það greiðast í yfirvinnu.

 

Fyrir starfsfólk með sveigjanlegan vinnutíma er vinnuskylda nú reiknuð á Yfirvinnu 1 í stað Yfirvinnu áður í Vinnustund. Öll yfirvinna birtist því sem Yfirvinna 1 í Yfirfara - Tímar mynd.

 

Fyrir aðra er reiknuð yfirvinna 1 milli 8 og 17 á virkum dögum en yfirvinna (eða stórhátíðarkaup) á öðrum tímum og geta báðar yfirvinnutegundirnar komið fram í Yfirfara - Tímar mynd.

 

Í bunkavinnslu er reiknaður út fjöldi tíma sem flytja á í Yfirvinnu ef einhverjir eru.

 

Birting í Vinnustund

Bunki - útreikningur 1

 

 

Starfsmaður er dagvinnumaður í fullu starfi með sveigjanlegan vinnutíma. Öll yfirvinna er því reiknuð á yfirvinnu 1 en flutt á yfirvinnu (2) þar sem starfsmaður er í fullu starfi.

 

 

Bunki - útreikningur 2

 

 

Í þessu dæmi er starfsmaður í 80% starfi með sveigjanlega vinnutíma. Öll yfirvinna er því reiknuð á yfirvinnu 1. 8 af 18 tímum voru unnir utan dagvinnu (utan 8-17 á virkum dögum) og eru því fluttir í yfirvinnu (2).

 

 

Hægt er að smella á (i) hnappinn til að sjá nánari útskýringar, hér er uppgjörsflipinn fyrir útreikning 2

 

Ath. alltaf er hægt að skoða útskýringar og niðurstöður úr uppgjörstímabilum undir Starfsmenn - Starfsmenn; flipinn Uppgjör.

 

Hér kemur fram vinnuskylda í 100% starfi (miðað við styttingu í þessu tiltekna starfi) og vinnuskylda starfsmanns samkvæmt vinnufyrirkomulagi.

Mismunurinn er 30,03 tímar. Öll yfirvinna sem þessi starfsmaður vinnur á dagvinnutíma að 30,03 stundum á að greiðast sem yfirvinna 1.

Í þessu tilfelli eru 8 stundir unnar utan dagvinnutíma og eru því greiddar sem yfirvinna.