Hér er birt tímauppgjör starfsmanna niður á launategund (hve margir tímar eru unnir á hverja launategund, út frá stimplunum og tímafærslum).
Hægt er að leita eftir skipulagseiningu(m), nafni, kennitölu og tímabili.
Ef nafn starfsmanns er rauðlitað þá eru það tímar starfsmanns af annarri skipulagseiningu sem kostnaðarfærðir hafa verið á þá skipulagseininguna sem leitað var eftir. Þessir tímar birtast ekki á skýrslu fyrir þá skipulagseiningu sem starfsmaðurinn tilheyrir.