Leyfisréttindi

Hver framkvæmir

Stofnanir / launadeildir skilgreina leyfisréttindi miðlægt og tengja síðan við kjarasamninga.

Tilgangur

Starfsmenn hafa rétt til leyfis eins og kjarasamningur þeirra segir til um.

Leyfi sem ekki eru ávinnsluleyfi birtast hjá tímavinnumönnum ef kjarasamningur segir að þau eigi að gilda fyrir alla á samningi. Einnig er hægt að handskrá leyfi á tímavinnumenn.

Dæmi um þannig leyfi eru "Áunnir hvíldartímar".

Nýskrá leyfisréttindi

Fara í ábyrgðarsviðið Samningar og velja þar Leyfisréttindi. Smella á nýskrá táknið efst í hægra horninu.

 

leyfisrettindi_nyskra.gif

 

Þá opnast skráningarmynd leyfisréttinda.

Smella þarf á Vista hnappinn þegar búið er að fylla út í skráningarsvæðin.

 

Tengja leyfisréttindi við kjarasamning

Fara í ábyrgðarsviðið Samningar og velja þar Samningar. Smella á flipann leyfisréttindi. Smella á Nýskrá hnappinn neðst í hægra horninu ef tengja á ný leyfisréttindi við samning en ef breyta á leyfisréttindum sem þegar eru tengd er smellt á heiti leyfisréttinda.

 

leyfisrettindi_tengja_samning.gif

 

Breytingar á stýringum fyrir ofan flipamynd eru gerðar með því að smella á breyta táknið efst í hægra horninu.

Breytingar á forsendum eru gerðar í flipanum Forsendur, þar er smellt á breyta táknið eða Nýskrá hnappinn (ef hægt er að hafa margar forsendur).

 

leyfisrettindi_breyta.gif

 

Breyta leyfisréttindum

Hægt er að breyta leyfisréttindum á tvo vegu.

Með því að fara í leyfisréttindin úr samningi (sjá Tengja leyfisréttindi við kjarasamning).

Einnig er hægt að fara í Samningar->Leyfisréttindi. Smella þar á heiti þeirra leyfisréttinda sem á að breyta og fá þá upp skráningarmynd leyfisréttinda.