Bakfærsla hvíldartímabrota

Hver framkvæmir

Næsti yfirmaður, starfsmannadeild.

 

Tilgangur

Leyfa að bakfæra hvíldartímabrot sem farin eru til launa.

 

Hvar og hvernig gert

Í Yfirfara > Hvíldartíma er hægt að leita eftir skráðum hvíldartímabrotum og bakfæra færslur sem sendar hafa verið til launa.

 

Smellt er á "S" hlekkinn til að fá upp öll hvíldartímabrot sem skráð hafa verið á starfsmanninn á völdu tímabili. Birt eru brot hálfu ári fyrir byrjunardagsetningu tímabils og hálfu ári eftir lokadagsetningun.

 

bakfaera_hvild_til_laun.gif

 

 

Bakfærsluhlekkurinn "B" birtist aftan við þau brot sem búið er að senda til launa. Dagsetning er í dálkinum "Dags til launakerfis" ef búið er að senda brotið til launakerfis.

Smellt er á "B" hlekkinn til að bakfæra. Þá verður til lína fyrir bakfærsluna og birt er hvenær hafi verið bakfært og af hverjum.

 

bakfaera_hvild_til_laun_bakf.gif