Hægt er að fá lista yfir þá starfsmenn sem hafa ákveðið aðgangshlutverk.
Starfsmaður sem hefur aðgangshlutverkið Aðgangur.
Fara í aðgangshlutverkið Aðgangur og velja Starfsmenn.
Veldu aðgangshlutverk úr vallista og smelltu á leita. Þá færðu lista yfir alla þá starfsmenn sem hafa þetta aðgangshlutverk miðað við gildisdagsetningu í leitaskilyrði.
Þú færð aðeins upp þá starfsmenn sem eru með valið aðgangshlutverk í gildi miðað við gildisdagsetningu í leit.
Hægt er að skoða aðgang starfsmanns nánar með því að smella á nafn hans.