Notandi getur skilgreint sína eigin röðun í vinnuborði. Hægt að búa til fleiri en eina röðun og vista. Röðunarmöguleikum er skipt í starfsmenn, vaktir og tími. Undir hverjum flokk er hægt að raða eftir ákveðnum undirflokkum, sjá mynd hér að neðan.
Ef raða er eftir tímum þá breytist röðunin eftir því hvaða daga er verið að skoða.
Röðun | Lýsing | |
Starfsmenn – Nafn | ![]() |
Hægt að velja um stafrófsröð eða öfuga starfrófsröð |
Starfsmenn – Starfshlutfall | ![]() |
Hægt að raða eftir vaxandi eða minnkandi starfshlutfalli |
Starfsmenn – Hæfniþáttur starfsmanns, óháð færnistigi | ![]() |
Þessi röðun miðast aðeins við hæfniþátt en ekki færnistig. Hæfniþætti er hægt að raða eftir stafrófsröð og öfugri stafrófsröð. Einnig er hægt að velja handvirka röðun. Þá þarf notandi að vera búinn að skilgreina röðun á hæfniþáttum í forsendum. Röðun valin úr vallista. Ef engin röðun er til í forsendum birtist auður listi. |
Starfsmenn – Hæfni starfsmanns (hæfniþáttur og færnistig) | ![]() |
Þessi röðun miðast við hæfniþátt og færnistig starfsmanns. Hægt að raða eftir stafrófsröð og öfugri stafrófsröð. Einnig er hægt að velja handvirka röðun. Þá þarf notandi að vera búinn að skilgreina röðun á hæfni í forsendum. Röðun valin úr vallista. Ef engin röðun er til í forsendum birtist auður listi. |
Starfsmenn – Vinnuskil | ![]() |
Vinnuskilum er hægt að raða vaxandi/minnkandi. Ef hakað er við % er raðað eftir prósentu í dálkinum AL annars er raðað útfrá tímafjölda í +/- dálki í summuglugga |
Vaktir – Tegund vinnu | ![]() |
Tegund vinnu hægt að raða eftir þeirri röð sem er í síuglugga.
![]() |
Vaktir – Hæfnþáttur vakta, óháð færnistigi | ![]() ![]() |
Þessi röðun á aðeins við hæfniþátt, ekki tekið tillit til færnistigs. Hæfniþætti er hægt að raða eftir stafrófsröð og öfugri stafrófsröð. Einnig er hægt að velja handvirka röðun. Þá þarf notandi að vera búinn að skilgreina röðun á hæfniþáttum í forsendum. Röðun valin úr vallista. Ef engin röðun er til í forsendum birtist auður listi. |
Vaktir – Hæfni vakta (hæfniþáttur og færnistig) | ![]() |
Þessi röðun á við hæfniþátt, of færnistig. Hæfni er hægt að raða eftir stafrófsröð og öfugri stafrófsröð. Einnig er hægt að velja handvirka röðun. Þá þarf notandi að vera búinn að skilgreina röðun á hæfni í forsendum. Röðun valin úr vallista. Ef engin röðun er til í forsendum birtist auður listi. |
Vaktir – Staðsetning | ![]() ![]() |
Staðsetningu er hægt að raða eftir stafrófsröð og öfugri stafrófsröð. Einnig er hægt að velja handvirka röðun. Þá þarf notandi að vera búinn að skilgreina röðun á staðsetningu í forsendum. Röðun valin úr vallista. Ef engin röðun er til í forsendum birtist auður listi. |
Vaktir – Viðbótar-hæfniþáttur (óháð færnistigi) | ![]() ![]() |
Þessi röðun á við hæfniþátt, ekki raðað eftir færnistigi. Viðbótarhæfni er skráð á vaktina, annaðhvort að hluta eða alla. Yfirtekur þann hæfniþátt sem til er fyrir. Viðbótarhæfni er hægt að raða eftir stafrófsröð og öfugri stafrófsröð. Einnig er hægt að velja handvirka röðun. Þá þarf notandi að vera búinn að skilgreina röðun á hæfni í forsendum. Röðun valin úr vallista. Ef engin röðun er til í forsendum birtist auður listi. Hægt að velja um hvort raða eigi eftir viðbótarhæfni sem skráð er á heila vakt eða taka einnig með þá sem skráð er á hluta vaktar. |
Vaktir – Viðbótar-hæfni (hæfniþáttur + færnistig) | ![]() ![]() |
Þessi röðun raðar eftir hæfniþætti og færnistig. Viðbótarhæfni er skráð á vaktina, annaðhvort að hluta eða alla. Yfirtekur þann hæfniþátt sem til er fyrir. Viðbótarhæfni er hægt að raða eftir stafrófsröð og öfugri stafrófsröð. Einnig er hægt að velja handvirka röðun. Þá þarf notandi að vera búinn að skilgreina röðun á hæfni í forsendum. Röðun valin úr vallista. Ef engin röðun er til í forsendum birtist auður listi. Hægt að velja um hvort raða eigi eftir viðbótarhæfni sem skráð er á heila vakt eða taka einnig með þá sem skráð er á hluta vaktar. |
Vaktir – Verkefni | ![]() ![]() |
Verkefni er hægt að raða eftir stafrófsröð og öfugri stafrófsröð. Einnig er hægt að velja handvirka röðun. Þá þarf notandi að vera búinn að skilgreina röðun á verkefni í forsendum. Röðun valin úr vallista. Ef engin röðun er til í forsendum birtist auður listi. Hægt er að skrá verkefni á alla vaktina eða hluta hennar. Það er því hægt að velja um það hvort raða eigi aðeins eftir verkefnum sem skráð eru á alla vaktina eða hvort taka eigi með þau verkefni sem skráð eru á hluta vaktar |
Vaktir – Auka-staðsetning | ![]() ![]() |
Auka-staðsetning er skráð á vaktina, annaðhvort að hluta eða alla. Yfirtekur þá staðsetningu sem til er fyrir. Auka-staðsetningu er hægt að raða eftir stafrófsröð og öfugri stafrófsröð. Einnig er hægt að velja handvirka röðun. Þá þarf notandi að vera búinn að skilgreina röðun á staðsetningu í forsendum. Röðun valin úr vallista. Ef engin röðun er til í forsendum birtist auður listi. Hægt að velja um hvort raða eigi eftir auka-staðsetningu sem skráð er á heila vakt eða taka einnig með þá sem skráð er á hluta vaktar. |
Vaktir - Fjarvist | ![]() ![]() |
Hægt að velja um stafrófsröð eða öfuga starfrófsröð þegar raðað er eftir fjarvsit. Einnig er hægt að velja um hvort taka eigi með í röðun þær fjarvistir sem skráðar eru á hluta vaktar eða aðeins þær sem skráðar eru á alla vaktina |
Tími – Upphafstími vakta | ![]() ![]() |
Hægt að velja um að raða í vaxandi eða minnkandi tímaröð. |
Tími – Upphafstími viðbótar-hæfniþáttar (óháð færnistigi) | ![]() ![]() |
Hægt að velja um að raða í vaxandi eða minnkandi tímaröð. Aðeins raðað eftir viðbótarhæfni, ekki tekið tillit til færsnistigs. |
Tími – Upphafstími viðbótarhæfni (hæfniþáttur + færnistig) | ![]() ![]() |
Hægt að velja um að raða í vaxandi eða minnkandi tímaröð. Raðað eftir viðbótarhæfni og færnistigi. |
Tími – Upphafstími auka-staðsetningar | ![]() ![]() |
Hægt að velja um að raða í vaxandi eða minnkandi tímaröð |
Tími – Upphafstími verkefna | ![]() ![]() |
Hægt að velja um að raða í vaxandi eða minnkandi tímaröð |