Samþykkja tíma starfsmanns

Yfirmaður þarf að yfirfara og samþykkja tíma starfsmanns áður en þeir eru sendir til launakerfis.  

Starfsmaður getur ekki breytt tímum sem búið er að samþykkja.

Ef færslan er ekki farin til launakerfis getur yfirmaðurinn hins vegar breytt samþykktri færslu í ósamþykkta þá getur starfsmaður leiðrétt hana.

 

 

Til að yfirfara tíma er farið í Yfirfara ->Tímar eða Tímar dagur og leita eftir starfsmanni og tímabili sem yfirfara á.

 

 

Ef samþykkja á einstaka færslu er smellt á grátt S á þeirri færslulínu sem samþykkja á.

 

Til að samþykkja alla tíma í lista, sem ekki eru þegar samþykktir, er hægt að smella á S efst í dálkinum Staða.

 


S verður þá rautt.

 

Smella þarf á Vista hnappinn svo tímafærslan fái stöðuna Samþykkt.  Við það verður S táknið blátt.  

 

 

 

Þegar tímafærslan hefur verið samþykkt þá er ekki lengur hægt að breyta henni nema setja hana fyrst í stöðuna Ó (ósamþykkt).  

Vista breytingu á færslunni og þá er hægt að breyta tímafærslunni.