Skoða /skrá sögu

Í Vinnustund eru breytingar sem gerðar hafa verið á kjarasamningi og skipulagseiningu starfsmanns úr starfsmannakerfi birtar undir Sögu flipa í Starfsmannamynd.

Þetta á við um öll starfsmannakerfi nema H3 en þaðan berast eingöngu nýjustu upplýsingar.  Því þarf að handskrá sögufærslur vegna flutnings starfsmanns milli kjarasamninga eða skipulagseininga í H3.

 

Hvar og hvernig gert

Fara í Starfsmenn -> Starfsmenn og leita að starfsmanni. Velja flipann Saga í starfsmannamynd.

 

Skoða sögu

Flipinn geymir upplýsingar um hvaða kjarasamning starfsmaður er tengdur við og hvaða skipulagseiningu hann tilheyrir.

Ef breytingar eru gerðar á starfinu í starfsmannakerfinu þá verður til ný færsla í sögu flipanum.

 

 

Handskrá sögu (á eingöngu við þar sem Vinnustund er tengd við H3 launakerfi)

Ef starfsmaður skiptir um annað hvort skipulagseiningu eða kjarasamning en heldur sama starfsnúmeri, þá sendir H3 sögufærslu yfir í Vinnustund með upphafsdag þegar breytingin á sér stað. Því er mikilvægt að skrá eldri sögu í Vinnustund til þess að byrjunardagsetning sé rétt og að ávinnsla leyfa teljist frá byrjun.

Sama á við ef um eyðu í starfi er að ræða og starfsmaður kemur svo til starfa aftur með sama starfsnúmer.

 

Dæmi til útskýringar:

Starfsmaður hóf störf þann 1.1.2017

Þann 13.8.2018 flytur hann milli skipulagseininga.

Eftir breytinguna lítur Söguflipinn svona út

 

 

Þ.e. Vinnustund hefur ekki lengur upplýsingar um sögu starfsmanns fyrir 13.8.2018.

Skrá þarf eldri sögu með því að smella á Nýskrá hnappinn.

Eftir að ný lína hefur verið skráð þá líða u.þ.b. 5 mínútur þar til byrjunardagsetning uppfærist.

 

 

Staða í starfi = N/A táknar að þessi lína fluttist úr H3 og ekki er hægt að breyta henni í Vinnustund.

Blýantur aftast í línu táknar að línan var handskráð í Vinnustund.

Fyrir kemur að eyða er í starfi, þ.e. starfsmaður hætti og kom aftur síðar en sama starfsnúmer er notað áfram.

Þá er hægt að skrá í sögu tvær línur, annars vegar upplýsingar um eldri sögu í starfi og hins vegar tímabilið á milli starfa en þá er valið „Utan vinnu“ úr lista yfir kjarasamninga.