Skýrslur - Verkskráning

Ef verkskráning er virk á stofnun/fyrirtæki geta starfsmenn með yfirmannsaðgang valið Skýrslur -> Verkskráning úr vallista vinstra megin.

 

Hægt er að leita eftir skipulagseiningu, verknúmeri (númeri eða heiti), verkhluta (númeri eða heiti), nafni starfsmanns, uppgjörstímabili eða ákveðinni viku.

 

Hægt er að skoða skráningar á ákveðið verknúmer fyrir allar skipulagseiningar, þær skipulagseiningar sem notandi hefur aðgang að eða á stakar skipulagseiningar.

 

 

Í Birta og Birta dálka er hægt að velja hvaða atriði koma fram í skýrslunni.