Skýrslur - Meðaltal launategunda

Skýrslan birtir samþykkta og uppgerða tíma yfir ákveðið tímabil ásamt meðaltali per mánuð.

 

ATH: Launategundir tengdar vaktahvata eru ekki birtar í fellivali í leitarforsendum þar sem ekki er hægt að birta niðurstöður vegna vaktahvata nema niður á launatímabil.

 

Hægt er að leita eftir skipulagseiningu, nafni, kennitölu og launategund (eða velja allar launategundir) ásamt því að tilgreina þarf tímabil með dags til og fjölda mánaða.

Ef allar launategundir eru valdar þarf að tilgreina skipulagseiningu, nafn eða kennitölu.

 

 

Í svæðinu Summa eru samþykktir og uppgerðir tímar starfsmanns yfir tímabilið.

 

Reikniformúlan fyrir meðaltal launategundar er:

Meðaltal launategundar = ((vinnuskylda / (vinnuskylda – útteknir orlofstímar)) * fjöldi tíma á valinni launategund) / fjöldi mánaða.

 

 

Dæmi:

Á 12 mánaða tímabili er t.d.:
vinnuskylda = 660 klst.
útteknir orlofstímar =  84

fjöldi tíma á launategund X = 340,34

 

Þá er útreikningurinn (660 / (660-84))*340,34 = 389,973 sem er þá gildið sem notað er í meðaltalsútreikninginn.

389,34/12mánuðum = 34,5 tímar í launategundina X á mánuði.

 

Orlofstímarnir eru teknir með inn í (sem hækkar þá launategundagildið) vegna þess að þessi skýrsla hefur verið notuð þegar um langtímaveikindi er að ræða og þá á að greiða meðaltal launategundarinnar miðað við orlof líka.

Orlofið er tekið með því ef starfsmaður hefði ekki tekið orlof á tímabilinu þá væri tímafjöldi á launategund hærri.

 

Ef við skoðum skýrsluna Fjarvistir þá skilar sú skýrsla annarri tölu í orlofstíma og það er vegna þess að í þeim útreikningum eru álagstímarnir dregnir frá.