Vaktavinnumenn geta valið milli tveggja mismunandi uppgjörsreglna vegna vaktavinnu sem unnin er á sérstökum frídögum og stórhátíðardögum. Þessar reglur eru:
a) Öll vinna á sérstökum frídögum og stórhátíðardögum greidd með yfirvinnu/stórhátíðarkaupi.
b) Vinna á sérstökum frídögum og stórhátíðardögum greidd með vaktaálagi og frí í 88 klst/ári (fyrir starfsmenn í fullri vinnu).
Starfsmenn fá greidda yfirvinnu fyrir vinnu á sérstökum frídögum og stórhátíðarkaup fyrir vinnu á stórhátíðardögum. Tímafjöldi er margfaldaður með 1,2 þar sem greiddar eru 12 mínútur í mat/kaffi fyrir hverja klukkustund.
Ef starfsmaður á frí á sérstökum frídögum eða stórhátíðardögum (sem falla á mánudaga - föstudaga eða laugardag fyrir páska), þá eru honum greiddir 8 tímar í yfirvinnu, miðað við fullt starf, svokölluð bæting.
Ef starfsmenn eru í hlutastarfi þá er bætingin greidd hlutfallslega miðað við það.
Tímafjöldi bætingar miðað við fullt starf er skráð á kjarasamning.
Starfsmenn fá greitt vaktaálag fyrir vinnu á sérstökum frídögum og stórhátíðardögum og safna auk þessi vetrarfríi (helgidagafríi) alls 88 klst/ári, miðað við fullt starf allt árið.
Ávinnslutímabilið er frá 1.janúar - 31.desember og er fríið tekið út árið eftir.
Engin bæting er reiknuð.