Símastimplun - leiðbeiningar

Hægt er að leyfa starfsmönnum að stimpla sig inn með því að hringja í símanúmer sem tengt er Vinnustund.  

 

Byrja þarf á því að stofna símanúmerið sem hringja á í hjá símafyrirtæki fyrirtækis/stofnunar og tengja við Advania.

Því næst þarf að skrá nýja símastimplunarklukku hjá Advania og tengja við innhringinúmerið.  Sú vinna er framkvæmd af Vinnustundarhóp Advania.

 

Að þessu loknu er hægt að skilgreina úr hvaða númerum má hringja í símastimplunina.  

 

Tengja starfsmenn við símastimplunarklukku

Fara í Stýringar -> Stofnanir/Fyrirtæki og velja stofnun/fyrirtæki.

Smella á flipann Símastimplun og því næst Skoða nánar hlekk aftan við símastimplunarklukkuna.

 

 

Hægt er að skrá starfsmenn sem hafa leyfi til að nota símastimplun og hvaða númeri þeir mega hringja úr.  
Skráningin er vinstra megin í flipanum og hægra megin birtist svo listi yfir innhringinúmer sem búið er að skrá.

 

 

Hægt er að skrá innhringinúmer sem einstaka starfsmaður má hringja úr eða innhringinúmer fyrir alla starfsmenn. Það er valið í svæðinu Starfsmaður hér að ofan.

Ef innhringinúmer er Fyrir alla, þarf auðkenni að vera skráð á viðkomandi starfsmenn þar sem það er notað til auðkenningar við innskráningu. Auðkenni starfsmanns er skráð í Nánar flipa starfsmannamyndar.

Ef innhringinúmer er eingöngu fyrir tiltekinn starfsmann þarf ekki auðkenni.  Því er ekki hægt að skrá sama innhringinúmer fyrir fleiri en einn tilgreindan starfsmann.

Staðsetning er valfrjálst svæði sem hægt er að nota til upplýsingar ef vill.

Í Tímabil þarf að setja upphafsdagsetningu símarstimplunar en ekki þarf að skilgreina lok tímabils.

Vista.