Vægi vinnuskyldustunda vaktavinnufólks

Vinnuskyldustundir vaktavinnufólks utan dagvinnumarka samkvæmt skipulagðri vaktskrá og innan vinnuskyldu hafa ólíkt vægi við útreikning vinnuskila.
Þannig hafa vaktir sem unnar eru á kvöldin virka daga og á morgun og kvöldvöktum um helgar og sérstaka frídaga/stórhátíðisdaga stuðulinn 1,05 og næturvaktir stuðulinn 1,2.
Stuðullinn 1,05 þýðir að fyrir hverja klukkustund sem unnin er reiknast 63 mínútur í vinnuskil en 72 mínútur fyrir unna klukkustund með stuðulinn 1,2. 

 

 

 

Hvað breytist?

Í vinnuborði vaktaáætlunar í Vinnu er búið að bæta við virkni sem sýnir mismunandi vægi vakta.



Vinnuskylda vaktavinnumanna

Vinnuskylda vaktavinnumanna breytist og verður reiknuð eins og hjá dagvinnufólki, þ.e.  36/5 = 7,2 á dag.


Dæmi:

Vinnuskylda á vaktatímabili í +/- dálki þegar engar vaktir eru komnar.

 

Vægi vakta í Vinnu

Vægi vakta reiknast eingöngu á vaktir starfsfólks sem sem eru vaktavinnumenn eða vaktavinnumenn sem vinna ekki rauða daga að því tilskildu að samningar þeirra segi til um það.

Í Vinnu er hægt að sjá hvert vægi mismunandi vakta er.

 

Með því að fara með músina yfir vaktina sést vægi hennar undir vogarmerkinu. 8 tíma vakt frá 07:00 – 15:00 í miðri viku verður 8:12 með vægi.       

Ef tvísmellt er á vaktina er hægt að sjá nánar hvernig vægið reiknast.

     

Ef vaktir starfsmanns eiga ekki að fá vægi, vegna vinnufyrirkomulags eða samninga þá eru vaktirnar birtar án vægis.
Þeir sem eiga að fá vægi eru vaktavinnumenn og vaktavinnumenn sem vinna ekki rauða daga (þ.e. ef samningar þeirra leyfa það).

Fjarvistirnar lágmarkshvíld, veikindi og veikindi barna eru þær einu sem fá vægi.

     

Þegar vakt er sett niður þá hækkar samtalan í AL dálknum með væginu (ef við á).

  Dæmi: 10 tíma vakt verður 11 tímar þegar vaktin er sett niður. Þá hækkar talan í AL dálkinum, verður 11 með væginu.

 

  

Þak birt þegar hámark leyfilegrar styttingar er náð

Stytting á vinnuskyldu vegna vægis má ekki fara yfir 4 klukkustundir á viku hjá 100% starfsmanni. Vinnuskyldan á viku, 36 stundir, má s.s. ekki styttast meira en niður í 32 stundir á viku.

Reiknast hlutfallslega miðað við starfstíma og starfshlutfall.

Ef við erum með t.d. 6 vikna vaktaáætlun þá er hámarks leyfileg stytting á því tímabili 24 tímar.

Þegar hámarki leyfilegrar styttingar er náð birtist rautt strik fyrir ofan samtöluna.

 


Ef farið er með músina yfir færsluna birtast nánari upplýsingar.

 

 

Þegar hámarkinu er náð hættir vægið að teljast með þegar fleiri vaktir eru settar niður.


Dæmi:

Tímafjöldi almennra vakta er 264 tímar og þak er komið á leyfilega styttingu.

 

 

Bætt er við 10 tíma vakt sem með vægi er 11 tímar.

 

 

Þar sem þakinu er náð telur vaktin aðeins sem 10 tímar ekki 11. Tímafjöldi vakta í dálkinum AL fer í 274.

 

 

Vægi niður á launatímabil

Samkvæmt samningum mega vinnustundir starfsmanns í fullu starfi aldrei fara undir 32 vinnustundir

á viku að jafnaði (að meðaltali á launatímabili) og hlutfallslega miðað við starfstíma og starfshlutfall.

 

Hægt er að skoða vægið niður á launatímabil, þá er farið í flipann Skýrslur -> Starfsmenn og smellt á

 

Birt eru þau launatímabil sem skara vaktatímabilið. Í þessu dæmi eru það 2 launatímabil.

 

 

Með því að fara með músina yfir dálkana fást tölur um vinnuskyldu og styttingu fyrir viðkomandi tímabil.

 

 

 

 

 

Vægi starfsmanna niður á vaktatímabil

Með því að velja starfsmann og Vægi er hægt að fá sundurliðun yfir vaktir og vægi starfsmanns yfir vaktatímabil.

Hægt er að sjá tvö mismunandi yfirlit.

 

 

Sundurliðun 1.

 

 

Sundurliðun 2.