Endurmenntun í grunnskólum

Endurmenntun í grunnskólum hefur víða verið skráð sem blanda af aukatímum og leyfi.

 

Frá 1.8.2021 hefur virkni verið breytt (hjá flestum sveitarfélögum) þegar fjarvistir vegna endurmenntunar eru skráðar. Þ.e. gildistími breytinga í Vinnustund er 1.8. en breytingar eru framkvæmdar í Vinnustund í nóvember 2021.

 

Breytingin er tvenns konar:

- annars vegar er hægt að skrá fjarvist vegna endurmenntunar utan vinnutíma, þ.e. á kvöldin og um helgar.

- hins vegar hefur verið settur inn stuðull endurmenntunar, þannig að á sumrin er stuðull alltaf 1 en á starfstíma skóla er hann 1,33 á kvöldin og 1,45 um helgar.

Stuðullinn gildir bæði vegna uppfyllingar á vinnuskyldu og við úttekt af leyfisréttindunum.

 

Aukatímar vegna endurmenntunar verða óþarfir við þessa breytingu og eins er hægt að skoða rétta stöðu á endurmenntun á einum stað, þ.e. í skýrslunni staða leyfis.

 

Launafulltrúum er ráðlagt að taka aukatíma úr gildi og leiðbeina sínu fólki að nota eingöngu fjarvistarskráningu héðan í frá.

 

Auk þessa breytist ávinnsla Endurmenntunar, áður var hún mismunandi eftir aldri til samræmis við orlofsávinnslu en eftir að samið var um 30 daga orlof óháð aldri þá er ávinnsla endurmenntunar einnig sú sama fyrir alla.

 

Dæmi

Hér hefur endurmenntun verið skráð á nokkra daga

 

 

Laugardagur 21.8. er að sumri, þ.e. utan starfstíma skóla og þá er endurmenntun alltaf tími á móti tíma eða með stuðulinn 1.

 

Miðvikudaginn 25.8. er starfstími skóla hafinn, vinnutími starfsmanns frá 8-16:34 er án stuðuls og telst sem 8.57 tímar í endurmenntun en frá 16:34-20:00 er stuðullinn 1,33.

Sá tími telst því sem 3:26 * 1,33 = 4,57

 

Fimmtudaginn 26.8. er einnig stuðullinn 1,33 og því teljast tímarnir þrír sem 3,99 upp í vinnuskyldu.

 

Laugardaginn 28.8. er stuðullinn 1,45 og teljast 8 tímar þann dag sem 11,6 upp í vinnuskyldu.

 

 

Starfsmenn - leyfi

 

Ef smellt er á tímafjölda úttekta í leyfismynd er líka hægt að sjá hvernig stuðullinn hefur áhrif á úttekt af leyfisréttindum.

 

.

 

Fjarvistartegund fyrir Endurmenntun

Bætt hefur verið við stillingu á fjarvistartegundir sem eingöngu gildir ef Leyfistegund á fjarvist er Endurmenntun; þá er hægt að setja Já í dálkinn "Má skrá utan vinnutíma.

 

Þessu þurfa launafulltrúar að breyta á núverandi endurmenntunarfjarvist til þess að ná fram fullri virkni.

 

 

Samantekt á því sem launafulltrúar þurfa að breyta

 

Breytingar sem gerðar verða hjá Advania